Ný stjórn ASÍ-UNG: Sjö frá aðildarfélögum SGS

5. þing ASÍ-UNG var haldið á Hótel Natura Reykjavík síðastliðinn föstudag. Einn af hápunktum þingsins var málþing um hlutverk stéttarfélaga og þær áherslur sem ungt fólk vill sjá í komandi kjarasamningum. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fluttu erindi og tóku svo þátt í pallborðsumræðum ásamt tveimur stjórnarmönnum ASÍ-UNG, þeim Eiríki Þór Theódórssyni og Hafdísi Ernu Ásbjarnardóttur. Miklar umræður sköpuðust varðandi stöðu ungs fólks á vinnumarkaði og er ljóst að fulltrúum finnst að víða megi gera betur til að styrkja stöðu þessa hóps. Ný stjórn var kosin til starfa þar sem lögð var áhersla á jafna skiptingu út frá kyni, búsetu og félögum. Sjö af níu stjórnarmönnum koma úr röðum aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins. Þessu er sambandið afar stolt af og ánægjulegt er að sjá unga og krafmikla einstaklinga bjóða fram krafta sína á þessum vettvangi. Ljóst er að ungliðafundir SGS sem haldnir hafa verið árlega frá árinu 2016 hafa skilað auknum áhuga hjá ungum félagsmönnum. Nýja stjórn ASÍ-UNG skipa: Aðalstjórn: Alma Pálmadóttir, Efling Gundega Jaunlina, Hlíf Karen Birna Ómarsdóttir, Aldan Margret Júlía Óladóttir, FVSA Eiríkur Þór Theodórsson, Stétt Vest Sindri Már Smárason, Afl Ástþór Jón Tryggvason, VLFS Aðalbjörn Jóhannsson, Framsýn Margrét Arnarsdóttir, FÍR Varastjórn: Kristinn Örn Arnarson, Efling Ólafur Ólafsson, Eining Iðja Hafdís Erna Ásbjarnardóttir, Einingu Iðja Birkir Snær Guðjónsson, Afl Elín Ósk Sigurðardóttir, Stétt Vest Stjórnin skiptir með sér verkum og kaus sér formann varaformann og ritara. Formaður ASÍ-UNG er Aðalbjörn Jóhannsson. Varaformaður er Eiríkur Þór Theodórsson. Ritari er Alma Pálmadóttir.           Helstu hlutverk ASÍ-UNG eru að kynna ungu fólki á vinnumarkaði réttindi þess og skyldur og starfsemi stéttarfélaganna. ASÍ-UNG er málsvari ungs fólks innan verkalýðshreyfingarinnar sem og út á við. Jafnframt að tryggja að rödd unga fólksins heyrist í starfi og stefnumótun stéttarfélaganna.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag