Ný vefsíða um sjálfboðaliðastarfssemi í loftið

Ný vefsíða um sjálfboðaliðastarfssemi hefur litið dagsins ljós undir slóðinni www.volunteering.is. Á síðunni er m.a. að finna grunnupplýsingar um það hvernig vinnumarkaðurinn virkar á Íslandi og til hvaða stéttarfélag skal leita á því svæði sem viðkomandi hyggst vinna á. Þá er síðunni ætlað að veita þeim, sem hyggjast koma til landsins til sjálfboðastarfa, upplýsingar um sín réttindi og hvetja þau m.a. til að gera launakröfur. Undanfarin ár hefur það færst í aukana að atvinnurekendur á Íslandi hafi fengið til sín starfsfólk í sjálfboðastörf, en með sjálfboðaliðastörfum er átt við að ýmist eru engin laun greidd eða mögulega fæði, gisting og uppihald auk þess sem einhvers konar skemmtunar/afþreyingar komi til móts það vinnuframlag sem innt er af hendi. Algengast er að um sé að ræða erlend ungmenni og að vinnan sé hluti af upplifuninni eða einhvers konar ævintýramennska. Frekari upplýsingar um sjálfboðaliðastarfsemi má finna á vef Starfsgreinasambandsins: www.sgs.is/fraedslumal/sjalfbodalidar/
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag