Nýr kjarasamningur við Flugleiðahótel ehf. vegna Edduhótela

Flugleiðahótel ehf., fyrir hönd sumarhótela sinna, og Starfsgreinasamband Íslands hafa skrifað undir nýjan kjarasamning um kaup og kjör starfsfólks á Edduhótelum, sem vinnur eftir hlutaskiptakerfi. Skrifað var undir samninginn 26. apríl síðastliðinn. Samningurinn tekur mið af þeim breytingum sem gerðar voru á kjarasamningum á almennum vinnumarkaði og undirritaðir voru 3. apríl 2019. Verði gerðar breytingar á kjarasamningum milli SGS og SA á samningstímanum, skulu sömu breytingar ná til þessa samnings. Samninginn má nálgast hér.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag