Nýr kjarasamningur við NPA miðstöðina

Fyrr í dag undirritaði Starfsgreinasamband Íslands nýjan kjarasamning við NPA miðstöðina. Samningsviðræður hafa staðið yfir í dágóðan tíma og liggur mikil og góð samvinna samningsaðila að baki samningsins. Gildistími samningsins er frá 1. maí 2015 til 31. desember 2018 og tekur hann til vinnu félagsmanna aðildarfélaga SGS í störfum sem aðstoðarfólk fatlaðs fólks. Þá tekur samningurinn mið af aðalkjarasamningi SGS við Samtök atvinnulífsins og hefur sömu samningsforsendur og hann. Samninginn í heild má lesa hérPdf-icon.
  1. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  2. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  3. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag
  4. 3/11/2024 3:03:03 PM Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning SGS og SA (1)