Nýr vefur SGS í loftið

Vefur Starfsgreinasambands Íslands (SGS) hefur nú verið opnaður í nýrri og endurbættri mynd. Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á vefnum sem miða að því að  bæta þjónustu við alla þá sem eiga erindi við SGS. Lögð er áhersla á að upplýsingar á nýjum vef séu sem aðgengilegastar og settar fram á greinargóðan hátt. Á vefnum má m.a. nálgast ýtarlegar upplýsingar um erlend systursamtök SGS, umsagnir og ályktanir sambandsins, gögn frá þingum og ársfundum sem og gagnlegar upplýsingar um kjara-, og fræðslumál og réttindi launafólks. Gerð vefsins var í höndum Nepal ehf. sem sá um forritun og grafíska hönnun ásamt því að vera vistunaraðili vefsins. Allar ábendingar og athugasemdir varðandi vefinn eru vel þegnar og skulu sendar á netfangið arni@sgs.is.
  1. 6/4/2025 1:11:55 PM Burt með mismunun - ný vefsíða
  2. 5/5/2025 3:54:17 PM VLFS vinnur mál í Félagsdómi vegna alvarlegra brota gegn fél…
  3. 5/2/2025 2:10:50 PM Orlofsuppbót 2025 - reiknivélar fyrir félagsmenn
  4. 4/30/2025 2:33:52 PM Fjölbreytt dagskrá á baráttudegi verkalýðsins