Nýr vinnustaðasamningur við Mjólkursamsöluna

Í dag 11. apríl var undirritaður nýr samningur við Mjólkursamsöluna vegna verkafólks og bílstjóra í fjórum aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins: Stéttarfélagi Vesturlands, Bárunnar stéttarfélags, AFLi starfsgreinafélagi og Einingu-Iðju. Samningurinn snertir því þá sem starfa utan höfuðborgarsvæðisins og eru félagar í SGS. Margir mismunandi samningar hafa verið í gangi á hverjum stað fyrir sig og hafa staðið yfir viðræður í marga mánuði um að samræma samningana. Það tókst á endanum. Báðum aðalkröfum fulltrúa starfsfólks var mætt, þ.e. að hækka bílstjóra um launaflokka og samræma samninginn. Önnur ákvæði héldust nær óbreytt að innihaldi. Samningurinn verður kynntur starfsfólki á Selfossi, í Búðardal, á Egilsstöðum og á Akureyri þann 19. apríl og verður kosið um hann samdægurs. Atkvæði verða talin uppúr einum sameiginlegum potti þann 21. apríl.   Á myndinni má sjá Ingu Guðrúnu Birgisdóttur mannauðsstjóra MS, Ara Edwald forstjóra MS, Björn Inga Sveinsson trúnaðarmaðnn á Selfossi og Sigurð Svein Ingólfsson trúnaðarmaðnn á Akureyri undirrita samninginn.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag