Ráðstefna um lífsgæði og kjör starfsfólks í hlutastörfum og vaktavinnu

Starfsgreinasamband Íslands boðar til ráðstefnu þann 12. janúar 2017 um lífsgæði og kjör starfsfólks í hlutastörfum og vaktavinnu. Sjónum verður beint að því hvort starfsfólk velur sér sjálft þessi störf og hvaða áhrif störf sem eru ekki með hefðbundinn vinnutíma hafa á lífsgæði fólks. Hvað getur starfsfólk gert til að draga úr streitu í vaktavinnu? Getur fólk valið að vinna fulla vinnu eða eru hlutastörf dulbúin kjaraskerðing? Hvernig eru kynjahlutföll meðal starfsfólks með óhefðbundinn vinnutíma? Hefur óhefðbundinn vinnutími áhrif á heilsu starfsfólks og þá hvernig? Þessum spurningum og fleiri verður velt upp á ráðstefnunni en dagskráin er blanda af reynslusögum starfsfólks, kynning á niðurstöðum nýlegra rannsókna og umfjöllun sérfræðinga um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum óhefðbundins vinnutíma. Ráðstefnan fer fram á Hotel Natura og hefst hún klukkan 12:30 og stendur til 16:30. Dagskrá 12:30 Setning. 12:40 Innlegg frá félagsmanni. 12:50 Kynning á niðurstöðum norrænnar rannsóknar um hlutastörf, tíðni þeirra og ástæður. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði hjá Háskóla Íslands. 13:35 Tímabundin störf og heilsufar á Íslandi: Niðurstöður úr heilsukönnun Hagstofu Íslands. Kolbeinn Hólmar Stefánsson, sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands. 14:20 Kaffihlé. 14:40 Innlegg frá félagsmanni. 14:50 Nýjustu rannsóknir á áhrifum streitu á heilsu og hver eru úrræðin! Ingibjörg Jónsdóttir, prófessor og yfirmaður Streiturannsóknastofnunar Gautaborgar. 15:35 Leiðir til að líða betur í vaktavinnu. Lára G. Sigurðardóttir læknir og fræðslustjóri hjá Krabbameinsfélagi Íslands. 16:20 Samantekt á niðurstöðum og ráðstefnuslit. Ráðstefnan er öllum opin á meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt er að skrá sig til leiks hér. Auglýsing ráðstefnunnar (PDF).
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag