Ríkissamningurinn samþykktur

Talin hafa verið atkvæði vegna samkomulags um breytingar og framlengingu á kjarasamningi við fjármála og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs við  Starfsgreinasambands Íslands. Samkomulagið var undirritað 1. apríl síðastliðinn og félagar greiddu atkvæði um samkomulagið í póstatkvæðagreiðslu. Samningurinn var samþykktur með 71,5% atkvæða en kjörsókn var 30%. Í samkomulaginu felst launahækkun um að lágmarki 8.000 krónur fyrir fullt starf á mánuði. Greidd verður eingreiðsla við samþykkt samningsins uppá 14.600 krónur og í apríl 2015 greiðist önnur eingreiðsla að upphæð 20.000 krónur miðað við fullt starf. Lágmarkstekjur fyrir fullt starf eftir 4 mánuði eru 214.000 krónur. Desemberuppbót verður 73.600 á árinu 2014 og orlofsuppbót verður 39.500 krónur. Önnur atriði samningsins má kynna sér hérPdf-icon. Samkomulagið sjálft sem og kjarasamning SGS og ríkisins má nálgast hér á vefnum undir "Kaup & kjör".[hr toTop="false" /]
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag