Ríkisstarfsmenn fá 20.000 krónur í apríl
Í samkomulagi sem SGS undirritaði við Fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs 1. apríl 2014 var sérstaklega samið um eingreiðslu til handa þeim þeim starfsmönnum sem heyra undir kjarasamning SGS við ríkið. Eingreiðslan nemur 20.000 kr. og á að greiðast þann 1. apríl næstkomandi. Hún miðast við þá sem voru í fullu starfi í febrúar 2015, en þeir sem eru í hlutastarfi og/eða hafa starfað hluta úr mánuði skulu fá hlutfallslega greiðslu.
Umrætt samkomulag SGS við ríkið má nálgast hér.
Kjarasamning SGS við ríkið má nálgast hér.