Ríkisstjórnin svíkur almennt launafólk

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands samþykkti á fundi sínum þann 12 desember 2011 að mótmæla áformum ríkistjórnarinnar um að skattleggja lífeyrissjóði þar sem slíkt mun leiða til skerðingar á lífeyrisréttindum á almennum vinnumarkaði og auka frekar á þann ójöfnuð sem er á lífeyrisréttindum á milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins. Með þessu svíkur ríkisstjórnin loforð sín frá því við undirritun kjarasamninga í vor um að jafna þessi réttindi.Þá mótmælir framkvæmdastjórn SGS einnig harðlega áformum ríkisstjórnarinnar um að hækka bætur almanna- og atvinnuleysistrygginga helmingi minna en lægstu laun hækka þrátt fyrir loforð um að lífeyrisþegar og atvinnulausir skuli njóta hliðstæðra kjarabóta.   Ályktunin í heild sinni
  1. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  2. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  3. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag
  4. 3/11/2024 3:03:03 PM Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning SGS og SA (1)