Samkomulag um endurskoðun viðræðuáætlunar undirritað

Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga og samninganefndir Starfsgreinasambands Íslands og Eflingar - stéttarfélags hafa undirritað samkomulag um endurskoðun viðræðuáætlunar aðila þar sem stefnt er að gerð nýs kjarasamnings fyrir 20. október næstkomandi. Jafnframt drógu SGS og Efling - stéttarfélag til baka vísun kjaradeilu aðila til ríkissáttasemjara. Þann 1. október 2019 verður hverjum starfsmanni greidd innágreiðsla á væntanlegan kjarasamning að upphæð 125.000 kr. miðað við fullt starf. Upphæðin greiðist hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall á tímabilinu frá og með 1. apríl 2019 til og með 30. september 2019.  Starfsmenn í fæðingarorlofi og tímavinnufólk fær innágreiðsluna. Það er sameiginlegur skilningur aðila að ofangreind fjárhæð sé hluti fyrirhugaðra launabreytinga á gildistíma hinna endurnýjuðu kjarasamninga aðila og verði metinn sem hluti af kostnaðaráhrifum þeirra.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag