Samninganefnd SGS hefur kjarabaráttu vetrarins

Í dag kom samninganefnd Starfsgreinasambandsins saman til fundar í húsakynnum ríkissáttasemjara. Um var að ræða fyrsta formlega fund nefndarinnar í haust. Í nefndinni sitja formenn allra þeirra aðildarfélaga sem veitt hafa sambandinu umboð til kjarasamningsgerðar við Samtök atvinnulífsins - alls 16 talsins um allt land. Á fundinum var farið yfir vinnuna sem er framundan varðandi endurnýjun kjarasamninga á almennum markaði. Samningaráð lagði fram tillögu að skipulagi sem samþykkt var samhljóða á fundinum. Einnig ræddu fundarmenn mögulegt samstarf, launakröfur, tímalengd samninga o.fl. Á næstu vikum og mánuðum mun nefndin og hópar á vegum hennar undirbúa sig vel fyrir samningana sem framundan eru, en ljóst þykir að launafólk gerir miklar væntingar til viðræðnanna sem framundan eru. Þess má geta að kjarasamningar SGS og SA renna út þann 28. febrúar næstkomandi sem og allir sérkjarasamningar sambandsins.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag