Samningur við sveitarfélögin - atkvæðagreiðsla hófst í morgun

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga hófst á slaginu kl. 8:00  á morgun (1. desember) og stendur hún til miðnættis þann 8. desember næstkomandi. Allir kosningabærir félagsmenn fá kynningarbækling sendan í pósti og ætti hann að berast félagsmönnum á næstu dögum. Í bæklingnum má m.a. finna lykilorð sem þarf að nota þegar greitt er atkvæði. Allir félagsmenn eru á kjörskrá í atkvæðagreiðslunni og er framkvæmdin með rafrænum hætti. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu geta kosið hjá stéttarfélagi sínu. Félagsmenn fara inn á heimasíðu Starfsgreinasambandsins (www.sgs.is) og smella á „Kjarasamningar 2015“ á forsíðunni. Þar geta félagsmenn greitt atkvæði með því að nota lykilorðið sem finna má á forsíðu bæklingsins. Ef einhver félagsmaður sem starfar hjá sveitarfélögunum fær ekki kynningarbækling og lykilorð þá getur sá hinn sami haft samband við félagið sitt og kært sig inn á kjörskrá.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag