SGS á ferð um Norðurlönd

Fulltrúar aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins hafa verið á ferð um Noreg og Danmörku til að kynna sér kjarasamningsgerð og uppbyggingu verkalýðshreyfingarinnar þar í löndum. SGS hittu Fällesforbundet i Noregi, sem eru systursamtök SGS og stærstu landssamtök innan norska ASÍ (LO). Þá var haldin kynning á framkvæmd verkfalls starfsfólks í hótel- og veitingagreinum í fyrrasumar sem SGS studdi með ráðum og dáð, auk þess sem farið var yfir verklag  við kjarasamningagerð. Í Danmörku hitti sendinefndin félaga okkar í 3F sem er stærsta stéttarfélag Danmörku. Þar þáðu Íslendingarnir fræðslu um kjarasamningagerð, vinnulag, laun og önnur réttindi starfsfólks á danska vinnumarkaðinu. Þá var farið sérstaklega yfir muninn á Norðurlöndunum varðandi kaup og kjör. Ljóst er að ferðin hefur verið árangursrík og fulltrúar aðildarfélaga SGS koma betur undirbúin heim undir umræður um framtíðarskipan kjarasamningsmála á Íslandi. IMG_1826 IMG_1829 IMG_1830 IMG_1831 IMG_1832 IMG_1835   IMG_1838  IMG_1840 IMG_1854
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag