SGS vísar kjaradeilu við SA til ríkissáttasemjara

Starfsgreinasamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa átt í viðræðum um nýjan kjarasamning frá því í október 2018. Á þeim tíma hafa aðilar átt tæplega 80 fundi um sértæk mál, sem og hátt í 30 fundi viðræðunefnda SGS og SA, um forsendur og innihald nýs kjarasamnings. Ýmislegt hefur þokast áfram á undangegnum vikum í einstökum málum og umræðugrundvöllur til staðar á öðrum sviðum. Þrátt fyrir það er það mat viðræðunefndar Starfsgreinasambandsins að nú verði ekki komist lengra nema með  aðkomu ríkissáttasemjara að deilunni, sem er eðlilegt skref í áframhaldandi vinnu. Í samræmi við umboð frá samninganefnd Starfsgreinasambandsins frá 14. febrúar síðastliðnum, samþykkir viðræðunefnd SGS að vísa kjaradeilu Starfsgreinasambandsins við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. Starfsgreinasambandið fer með umboð fyrir eftirtalin 16 aðildarfélög; AFL Starfsgreinafélag, Aldan stéttarfélag, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Stéttarfélag Vesturlands, Stéttarfélagið Samstaða, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Suðurlands, Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Verkalýðsfélag Þórshafnar, Verkalýðsfélagið Hlíf, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis og Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag