Starfsgreinasambandið slítur kjaraviðræðum

Starfsgreinasamband Íslands hefur ákveðið að slíta kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins eftir árangurslausan fund hjá ríkissáttasemjara í dag. Síðastliðin föstudag samþykkti samninganefnd Starfsgreinasambandsins einróma að ef ekki kæmu fram nýjar hugmyndir eða viðbrögð frá Samtökum atvinnulífsins um helgina hefði viðræðunefnd sambandsins fulla heimild til þess að slíta kjaraviðræðum. Engar nýjar hugmyndir eða tillögur hafa komið fram frá Samtökum atvinnurekenda. Því hefur viðræðunefnd Starfsgreinasambandsins slitið kjaraviðræðum og mun í kjölfarið sækja heimild til aðgerða frá félagsmönnum. Reykjavík, 18. mars 2019. Nánari upplýsingar: Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, í síma 894 0729.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag