Starfsgreinasambandið undirbýr næstu skref

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands veitti í dag samningaráði sambandsins umboð til að vísa kjaradeilu þess við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. Starfsgreinasambandið fer með umboð 16 aðildarfélaga um allt land og semur fyrir rúmlega 12 þúsund manns á almennum vinnumarkaði.  Launakröfur Starfsgreinasambandsins voru birtar Samtökum atvinnulífsins á fundi í húsnæði ríkissáttasemjara mánudaginn 26. janúar. Þar lýstu fulltrúar Samtaka atvinnulífsins því strax yfir að kröfugerðin gæti ekki orðið grundvöllur að samningagerð og höfnuðu frekari viðræðum við samninganefnd Starfsgreinasambandsins. Á fundi formanna aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins, sem haldin var í dag, var vonbrigðum lýst með þessi viðbrögð Samtaka atvinnulífsins, sem endurspegli mikið ábyrgðarleysi. Kjarasamningar muni ekki nást nema deiluaðilar ræðist við. Með viðbrögðum sínum hafi Samtök atvinnulífsins hins vegar ákveðið að skila auðu. Í ljósi þessara viðbragða undirbúa aðildarfélög Starfsgreinasambandsins nú að vísa deilunni til ríkissáttasemjara og hefja undirbúning aðgerða. Nánari upplýsingar: Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, símar:460 3600 / 894 0729 Drífa Snædal, framkvæmdastjóri SGS, símar:562 6410 /695 1757
  1. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  2. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  3. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag
  4. 3/11/2024 3:03:03 PM Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning SGS og SA (1)