Starfshópur skal móta nýtt framtíðarskipulag SGS

Þing Starfsgreinasambands Íslands samþykkti í dag að skipa 7 manna starfshóp sem á að fara í ítarlega vinnu við að móta framtíðarskipulag Starfsgreinasambandsins. Störfum þessa hóps lýkur á framhaldsþingi sem haldið verður í síðasta lagi í maí 2012. Verkefni starfshópsins er að fara yfir framtíðarskipulag SGS, m.a. endurskoðun á hlutverki, starfsemi, stjórnkerfi, rekstri og lögum sambandsins með það að markmiði að einfalda stjórnkerfið, draga úr rekstrarkostnaði og færa starfsemi sambandsins að breyttu umhverfi aðildarfélaganna. Við ákvörðun fulltrúa í starfshópinn var lögð áhersla á að velja formenn félaga sem endurspegla mismunandi sjónarmið og skoðanir um framtíð sambandsins. Starfshópinn skipa eftirtaldir fulltrúar: Aðalsteinn Á Baldursson (Framsýn stéttarfélag), Björn Snæbjörnsson (Eining-Iðja), Halldóra S. Sveinsdóttir (Báran stéttarfélag), Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir (Afl starfsgreinafélag), Kolbeinn Gunnarsson (Vlf. Hlíf), Kristján Gunnarsson (VSFK) og Sigurður Bessason (Efling stéttarfélag).
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag