- Femínískt hagfræði – hagræn og félagsleg þróun
- Líkamar kvenna og stúlkna – kynfrelsi og heilbrigði
- Konur á vinnumarkaði, launajafnrétti, menntun og starfsframi
- Ofbeldi gegn konum og stúlkum
- Umhverfi, loftslag og sjálfbær þróun
- Umönnunarstörf og velferðarsamfélagið
- Friður og öryggi
- Stjórnmálaþátttaka kvenna og þróun hennar
- Kynjasamþætting og jafnréttisstarf í fyrirtækjum
- Flóttamenn og fólksflutningar
- Framtíð femínismans á Norðurlöndum og skipulag kvennahreyfingarinnar
- Ný tækni og fjölmiðlar
Styttist í Nordisk forum
Nú styttist óðum í ráðstefnuna Nordisk forum sem haldin verður í Malmö í byrjun júní. Á ráðstefnunni koma saman konur frá öllum Norðurlöndunum til að ræða jafnréttismál og framtíðina. Í þau tvö skipti sem ráðstefnan hefur verið haldin hafa Íslenskar konur ekki látið sitt eftir liggja. Starfsgreinasambandið hefur tekið saman upplýsingar fyrir áhugasamar konur en konur eru hvattar til að hafa samband við sitt stéttarfélag til að fá nánari upplýsingar. Dagskrá og viðburðir eru kynntir á heimasíðu ráðstefnunnar. Sjáumst í Malmö!
Hvað er: Þing norrænna kvenna og hugmyndatorg jafnréttis. Vettvangur til að sameina krafta og brýna konur til frekari baráttu. Búist er við um 15.000 konum.
Sagan: Kvennaráðstefnan hefur verið haldin tvisvar áður, í Åbo/Turku 1994 og í Osló 1988. Íslenskar konur hafa fjölkvennt.
Hvar: Í Malmö Mässa, rétt við brúna yfir til Kaupmannahafnar.
Hvenær: 12.-15. júní 2014. Ráðstefnan er sett kl. 11 á fimmtudeginum (12. júní) og henni lýkur kl. 16-17 á sunnudeginum (15. júní)
Af hverju: Vekja áhuga á áskorunum jafnréttisbaráttunnar. Miðla þekkingu og hugmyndum. Búa til kröfur og tillögur að jafnréttispólitík. Búa til tengslanet. Styrkja konur á Norðurlöndunum og víða.
Áherslur: