Þing ASÍ-UNG - ný stjórn

4. þing ASÍ-UNG var haldið í húsakynnum Rafiðnaðarskólans síðastliðinn föstudag (23. september). Á þinginu sagði ungt fólk frá reynslu sinni á vinnumarkaði og baráttunni fyrir réttindum sínum. Þá voru flutt erindi um stöðu ungs fólk á húsnæðismarkaði og vinnumarkaðinn og fjölskylduna. Eftir hádegi fór fram hópavinna þar sem leitast var við að svara spurningunni „Hvernig sjáum við framtíð ungs fólks í hreyfingunni?“. Skipuð var ritnefnd sem mun hafa það hlutverk að fullmóta ályktanir ASÍ-UNG sem lagðar verða fyrir þing ASÍ sem fer fram í október næstkomandi. Ánægjulegt var að sjá að margir af þeim fulltrúum sem mættu á ungliðafund SGS, sem haldinn var í Grindavík í júní sl., voru einnig mættir á þingið sem fulltrúar síns félags. Þingið kaus níu manna stjórn ASÍ-UNG sem síðan skiptir með sér verkum. Stjórnin er skipuð ungu fólki á aldrinum 18-35 ára sem kemur úr stéttarfélögum víðsvegar að af landinu. Stjórnina skipa: Aðalbjörn Jóhannsson - Framsýn, stéttarfélag Agnar Ólason - VM, félag vélstjóra og málmtæknimanna Alma Pálmdóttir - Efling - stéttarfélag Bóas Ingi Jónasson - Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri Eiríkur Theódórsson - Stéttarfélag Vesturlands Eva Demireva - VR Hafdís E. Ásbjarnardóttir - Eining-Iðja Helgi S. Jóhannsson - Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri Svanborg Hilmarsdóttir - Félag íslenskra rafvirkja Varastjórn: Atli Hilmar Skúlason - VM, félag vélstjóra og málmtæknimanna Fjóla Helgadóttir - VR Guðbjörg Gunnarsdóttir - Stéttarfélag Vesturlands Kristinn Örn Arnarson - Efling - stéttarfélag Valgeir Eyþórsson - AFL Starfsgreinafélag Helstu hlutverk ASÍ-UNG eru að kynna ungu fólki á vinnumarkaði réttindi þess og skyldur og starfsemi stéttarfélaganna. ASÍ-UNG er málsvari ungs fólks innan verkalýðshreyfingarinnar sem og út á við. Jafnframt að tryggja að rödd unga fólksins heyrist í starfi og stefnumótun stéttarfélaganna. [caption id="attachment_66144" align="alignleft" width="300"]Ný stjórn ASÍ-UNG Ný stjórn ASÍ-UNG[/caption]              
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag