Upplýsingar um atkvæðagreiðslur

Þau félög sem undirrituðu nýjan kjarasamning í febrúar og leggja hann fyrir félagsmenn í atkvæðagreiðslu eru: Aldan í Skagafirði, Báran í Árborg, Drífandi í Vestmannaeyjum, Efling í Reykjavík, Eining-Iðja í Eyjafirðinum, Framsýn á Húsavík, Samstaða á Blönduósi, Stéttarfélag Vesturlands í Borgarfirðinum, Verkalýðsfélag Akraness, Verkalýðsfélag Grindavíkur, Hlíf í Hafnarfirði, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis, Verklaýðsfélag Snæfellinga og Verkalýðsfélag Þórshafnar. Umfjöllun um samninginn má nálgast hér: Kosningu skal lokið hjá öllum félögunum fyrir klukkan 12:00 þann 7. mars næstkomandi. Mismunandi aðferðir verða notaðar til að fá fram afstöðu félagsmanna til samningsins og verður kosningu í þessum félögum háttað með eftirfarandi hætti: Aldan stéttarfélag: Kjörfundur verður haldinn á skrifstofu félagsins (Borgarmýri 1) þriðjudaginn 4. mars til fimmtudaginn 6. mars frá klukkan 8-20 alla dagana. Báran stéttarfélag: Rafræn atkvæðagreiðsla verður viðhöfð, félagar fá sent lykilorð og leiðbeiningar um hvernig skal kjósa. Einnig er hægt að koma á skrifstofu stéttarfélagsins og kjósa þar.

Drífandi stéttarfélag: Kjörfundur verður haldinn á skrifstofu félagsins (Miðstræti 11) frá 24. febrúar kl. 12 til 6. mars kl. 12. Hægt er að óska eftir því að fulltrúar félagsins mæti á vinnustaði og gefi fólki kost á að kjósa þar.

Efling stéttarfélag: Póstatkvæðagreiðsla verður haldin hjá Eflingu og fá félagar senda atkvæðaseðla og leiðbeiningar heim sem ber að skila til félagsins eða setja í póst fyrir tiltekinn tíma. Eining-Iðja: Kjörfundur verður haldinn dagana 4. og 5. mars á skrifstofum Einingar-Iðju á Akureyri (Skipagötu 14), á Dalvík (Hafnarbraut 5), á Siglufirði (Eyrargötu 24b), á Ólafsfirði (Brekkugötu 9), Grenivík (hjá Róbert svæðisfulltrúa), Grímsey (hjá Önnu Maríu Sigvaldadóttur), Í Hrísey (hjá Guðrúnu svæðisfulltrúa). Kjörfundurinn er opinn á öllum stöðunum kl. 9-17 nema á Akureyrarskrifstofunni kl. 8-20. Framsýn stéttarfélag: Kjörfundur verður haldinn á skrifstofu Framsýnar á Húsavík (Garðarsbraut 26). Hægt er að óska eftir því að fulltrúar félagsins mæti á vinnustaði og gefi fólki kost á að kjósa þar. Stéttarfélagið Samstaða: Kjörfundir verða haldnir á skrifstofum félagsins á Blönduósi (Þverbraut 1), á Hvammstanga (Klapparstíg 4) og á Skagaströnd (Breiðabliki) dagana 4. og 5. mars kl. 9-17. Stéttarfélag Vesturlands: Póstatkvæðagreiðsla verður haldin hjá StéttVest og fá félagar senda atkvæðaseðla og leiðbeiningar heim sem ber að skila til félagsins eða setja í póst fyrir tiltekinn tíma. Verkalýðsfélag Grindavíkur: Kjörfundur verður haldinn á skrifstofu félagsins í Grindavík (Víkurbraut 46). Hægt er að óska eftir því að fulltrúar félagsins mæti á vinnustaði og gefi fólki kost á að kjósa þar. Verkalýðsfélagið Hlíf: Póstatkvæðagreiðsla verður haldin hjá Hlíf og fá félagar senda atkvæðaseðla og leiðbeiningar heim sem ber að skila til félagsins eða setja í póst fyrir tiltekinn tíma. Verkalýðsfélag Akraness: Kjörfundur á skrifstofu VLFA, Sunnubraut 13,  frá kl. 10:00 mánudaginn 3. mars og stendur hann yfir til kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 7. mars. Hægt er að kjósa á opnunartíma skrifstofu milli kl. 8 og 16, en einnig er hægt að óska eftir því að fulltrúar félagsins mæti á vinnustaði og gefi fólki kost á að kjósa þar. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis: Póstatkvæðagreiðsla verður haldin hjá VSFK og fá félagar senda atkvæðaseðla og leiðbeiningar heim sem ber að skila til félagsins eða setja í póst fyrir tiltekinn tíma. Verklaýðsfélag Snæfellinga:  Kjörfundur verður haldinn á skrifstofum Verkalýðsfélags Snæfellinga í Grundarfirði (Borgarbraut 2), í Snæfellsbæ (Ólafsbraut 19) og í Stykkishólmi (Þvervegi 2). Kjörfundur verður opinn mánudaginn 3. mars kl. 8-20, þriðjudaginn 4. mars kl. 8-16 og miðvikudaginn 5. mars kl. 8-15. Verkalýðsfélag Þórshafnar: Kjörfundur verður haldinn á skrifstofu Verkalýðsfélags Þórshafnar (Langanesvegi 18). Hægt er að óska eftir því að fulltrúar félagsins mæti á vinnustaði og gefi fólki kost á að kjósa þar.[hr toTop="false" /]
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag