Úttekt á stöðu mansals hér á landi

Fulltrúar sérfræðinganefndar Evrópusambandsins hafa verið hér á landi síðustu tvo daga til að skoða hvað við erum að gera til að stemma stigu við mansali. Á fimmtudag var haldinn vinnufundur með sérfræðingunum, lögreglunni, útlendingastofnun, þremur ráðuneytum, Vinnumálastofnun, Kvennaathvarfinu, Mannréttindaskrifstofunni, Rauða Krossinum og Starfsgreinasambandinu. Þessi hópur hefur unnið saman gegn mansali síðustu tvö árin og það var gagnlegt að geta borið mál og aðferðir undir hina erlendu sérfræðinga. Í dag, föstudag, var svo haldið opið málþing í Iðnó þar sem fjallað var frekar um málið. Ljóst er að unnið hefur verið gríðarlega gott starf hér síðustu ár með því að teyma saman fólk úr ólíkum áttum, vinna að fræðsluátaki, eftirliti og styrkingu innviða. Þetta hefur skilað sér í að fleiri mansalsmál hafa komið upp á yfirborðið en það er eins og með mansal og fjölda annarra glæpa, þeir finnast ekki nema leitað sé að þeim. Þó má gera mun betur og hafa síðustu dagar veitt hugmyndir að betra verklagi og skýrari ramma. Skýrsla sérfræðinganefndarinnar um stöðuna á Íslandi er varða þessi mál er væntanleg innan nokkurra vikna og verður kynnt á þessum vettvangi.
  1. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  2. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  3. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag
  4. 3/11/2024 3:03:03 PM Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning SGS og SA (1)