Vel heppnuðu framhaldsþingi SGS lokið

Vel heppnuðu framhaldsþingi Starfsgreinasambandsins er nú lokið. Á þinginu voru samþykkt ný lög sambandsins þar sem umtalsverðar breytingar eru gerðar á stjórnskipulagi, hlutverki og starfsemi sambandsins. Að auk voru samþykktar fjórar nýjar reglugerðir sem er ætlað að styrkja starfsemina, efla upplýsingamiðlun SGS og skilgreina verkaskiptingu milli aðildarfélaganna og sambandsins. Á þinginu var Björn Snæbjörnsson kjörinn formaður sambandsins og Hjördís Þ. Sigurþórsdóttir varaformaður, en þau hafa bæði gengt umræddum embættum frá því vorið 2011. Niðurstaða þingsins er afrakstur mikillar vinnu sem farið hefur fram á vegum sambandsins undanfarna mánuði. Síðastliðið haust var ákveðið að ráðast í gagngera endurskoðun á hlutverki, starfsemi, stjórnkerfi, rekstri og lögum sambandsins. Tillögur starfshóps sem skipaður var á þingi SGS í október s.l. voru lagðar fram fyrir framhaldsþingið og samþykktar. Tillögurnar breyttust lítillega í meðferðum þingsins, en miklar umræður sköpuðust um vissar tillögur. Ein veigamesta breytingin er að vægi formannafunda er aukið og skulu þeir haldnir að lágmarki 3-4 sinnum á ári. Þá er fækkað í framkvæmdastjórn sambandsins úr þrettán í sjö. Nokkur umræða skapaðist á þinginu um þá tillögu starfshópsins sem gerði ráð fyrir því að eingöngu skyldi horft til þess að hlutfall kynja væri sem jafnast í framkvæmdastjórn, en ekki ekki væri tekið tillit til landshluta eða starfsgreina.Tillaga starfhópsins var samþykkt en þess má geta að í nýrri framkvæmdastjórn eru þrjár konur og fjórir karlar.   Ný stjórn er skipuð eftirfarandi einstaklingum: Formaður: Björn Snæbjörnsson, Eining-Iðja Varaformaður: Hjördís Þ. Sigurþórsdóttir, AFL Starfsgreinafélag Meðstjórnendur: Aðalsteinn Á. Baldursson, Framsýn stéttarfélag Halldóra Sveinsdóttir, Báran stéttarfélag Kolbeinn Gunnarsson, Vlf. Hlíf Signý Jóhannesdóttir, Stéttarfélag Vesturlands Sigurður Bessason, Efling stéttarfélag Varamenn: 1. Sigurrós Kristinsdóttir, Eflin Stéttarfélag 2. Ásgerður Pálsdóttir, Stéttarfélagið Samstaða 3. Finnbogi Sveinbjörnsson, VerkVest 4. Vilhjálmur Birgisson, Vlf. Akranes 5. Magnús S. Magnússn, Vlf. og sjómannafélag Sandgerðis Starfs- og fjárhagsáætlun samþykkt Á þinginu var lögð fram ný starfsáætlun sambandssins fyrir árin 2012 og 2013 og var hún einróma samþykkt af fulltrúum þingsins. Áætlunin gerir ráð fyrir að sjö málaflokkar verði settir í forgang hjá skrifstofu sambandsins næstu tvö árin, en þeir snúa að kjaramálum, innra skipulagi, upplýsingamálum og ímynd sambandins, hagræðingu, málefnum útlendinga, fræðslu- og menntamálum og erlendum samskiptum. Drög að fjárhagsáætlun var jafnframt lögð fram á þinginu og var hún samþykkt. Í áætluninni er gert ráð fyrir áframhaldandi aðhaldi í rekstri sambandsins. Í áætluninni er ekki gert ráð fyrir því að skattur á aðildarfélög verði hækkaður á tímabilinu.    
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag