Verkefni SGS og samstarfsaðila hlýtur styrk úr Jafnréttissjóði

Nýlega hlaut Starfsgreinasamband Íslands, ásamt AkureyrarAkademíunni, Jafnréttisstofu og JCI Sprota, styrk úr Jafnréttissjóði til verkefnisins „Konur upp á dekk!“. Í ársbyrjun stóðu þrír síðarnefndu aðilarnir fyrir vel heppnuðu námskeiði undir yfirskriftinni „Konur upp á dekk! og í framhaldinu var ákveðið að þróa verkefnið enn frekar með aðkomu Starfsgreinasambandsins. Starfsgreinasambandið og tilheyrandi samstarfsaðilanir ákvaðu því í sameiningu að sækja um styrk í Jafnréttissjóð Íslands til að standa fyrir sambærilegum námskeiðum á sex stöðum á landinu sem verða sérsniðin að konum í verkalýðshreyfingunni. Meginmarkmið námskeiðanna er að stuðla að aukinni þátttöku kvenna bæði innan og í forystu verkalýðshreyfingarinnar en mjög hallar á konur á þessu sviði. Starfsgreinasambandið er stolt af því að taka þátt í verkefni sem þessu - verkefni sem mun vonandi stuðla að aukinni þekkingu og framþróun þegar kemur að jafnrétti kynjanna í okkar samfélagi. Það eru spennandi tímar framundan!
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag