Viltu láta til þín taka og hafa áhrif á verkalýðsbaráttuna og samfélagið?

Laugardaginn 10. nóvember næstkomandi mun Starfsgreinasambandið, í samstarfi við Jafnréttisstofu og AkureyrarAkademíuna, standa fyrir námskeiði sem er opið öllum konum sem eru félagar í Starfsgreinasambandi Íslands eða í starfsmannafélögum sveitafélaganna, þeim að kostnaðarlausu. Námskeiðið fer fram milli kl. 10:00 og 17:00  í sal Einingar-Iðju, Skipagötu 14 á Akureyri. Dagskrá námskeiðsins:
  • Að bjóða kynjakerfinu birginn
  • Staða verkalýðsbaráttunnar í dag
  • Uppbygging verkalýðsfélaganna
  • Leiðtogaþjálfun
  • Að hafa áhrif og koma sínu á framfæri
  • Að starfa í verkalýðshreyfingunni
Skráning skal berast í síðasta lagi fimmtudaginn 8. nóvember á netfangið kristinheba@akak.is eða í síma 461 4006.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag