Vinna er velferð

Á morgun 1. maí mun verkafólk víðsvegar um land berjast fyrir bættum kjörum á baráttudegi verkalýðsins. Kjörorð dagsins er "Vinna er velferð". Í dag eru enn þúsundir launafólks án atvinnu, en bætt atvinnuástand er án efa mikilvægasta hagsmunamál íslensks launafólks í dag. Hátíðarsamkomur og kaffisamsæti verða að minnsta kosti á 37 stöðum á landinu á 1. maí í tilefni af baráttudegi verkalýðsins. Meðfylgjandi listi er ekki endilega tæmandi en þetta eru þær samkomur sem SGS hefur vitneskju um hjá aðildarfélögum sambandsins. Reykjavík Safnast verður saman á Hlemmi kl. 13 og leggur kröfugangan af stað kl. 13:30. Útifundur á Ingólfstorgi hefst kl. 14:10. Nánari dagskrá má sjá hér. Að loknum útifundinum á Ingólfstorgi eða kl. 15:15 hefst kaffisamsæti Eflingar stéttarfélagas í Valsheimilinu við Hlíðarenda.   Selfoss Safnast  saman við Tryggvatorg og lagt af stað klukkan 11.00 við undirleik Lúðrasveitar Selfoss. Félagar í  hestamannafélaginu Sleipni fara fyrir göngunni. Stórglæsileg hátíðardagskrá fer fram utandyra. Fundarstjóri er Stefanía Geirsdóttir frá Foss. Ræðumenn dagsins eru Guðmundur Gunnarsson rafiðnaðarmaður og Guðrún Jónsdóttir frá Félagi eldri borgara á Selfossi. Lína langsokkur skemmtir og hljómsveitin Blár Ópal flytur nokkur lög.  Félagar í Bifreiðaklúbbi Selfoss sýna eðalvagna á svæðinu. Stéttarfélögin bjóða börnum  andlitsmálningu og stuttan reiðtúr sem Hestamannafélagið Sleipnir sér um. Í tilefni dagsins bjóða stéttarfélögin gestum upp á hátíðarkaffi.   Vestamannaeyjar Hátíðahöldin verða í Alþýðuhúsinu samkvæmt dagskrá. Húsið opnar kl. 14:30 og hálftíma síðar hefst baráttufundur og kaffisamsæti í Alþýðuhúsinu í boði stéttarfélaganna í Vestmannaeyjum. Kristín Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands flytur 1. maí ávarpið. Tónlistarskóli Vestmannaeyja sér um tónlistina. Kaffisamsæti í boði stéttarfélagana. 5. fl. karla í knattspyrnu selja 1. maí merkin og rennur allt söluandvirði merkjanna til þeirra. Bæjarbúar takið vel á móti sölubörnum.   Sandgerði Í tilefni af baráttudegi verkafólks 1. maí verður Verkalýðs og sjómannafélag Sandgerðis með opið hús að Tjarnargötu 8, húsi félagsins frá kl. 15 – 17. Kaffi og meðlæti og létt spjall. Allir velkomnir.   Reykjanesbær Hátíðardagskrá í Stapa, húsið opnar kl. 13:45 og formleg dagskrá hefst kl. 14:00. Setning - Ólafur S. Magnússon Félagi iðn og tæknigreina Ræða dagsins - Signý Jóhannesdóttir formaður Stéttarfélags Vesturlands og varaforseti ASÍ Bríet Sunna Valdimarsdóttir syngur nokkur lög Töframaðurinn Daníel Örn Leikfélag Keflavíkur og Vox Arena í FS flytja atriði úr verkinu Með allt á hreinu Kór Keflavíkurkirkju syngur nokkur lög Kynnir - Ragnar Örn Pétursson formaður Starfsmannafélags Suðurnesja Kaffiveitingar í boði stéttarfélaganna Kl. 13:00 - Börnum boðið á bíósýningu í Sambíói Keflavík   Hafnarfjörður Safnast saman fyrir framan Ráðhús Hafnarfjarðar kl. 13:30 og leggur kröfugangan af stað kl. 14:00. Hátíðarfundur hefst í Hraunseli, Flatahrauni 3 kl. 14:30              . Athugið húsið opnar ekki fyrr en kröfugangan kemur í hús. Fundastjóri - Jóhanna M. Fleckenstein Ávarp dagsins - Linda Baldursdóttir varaformaður Verkalýðsfélagsins Hlífar Ræða - Karl Rúnar Þórsson formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar Skemmtiatriði - Freyr Eyjólfsson eftirherma og tónlistarmaður fer með gamanmál. Kaffihlaðborð í boði stéttafélaganna að fundi loknum   Akranes Safnast verður saman við Kirkjubraut 40, kl. 14:00 og genginn verður hringur á neðri-Skaga. Að göngu lokinni verður hátíðardagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness á 3ju hæð Kirkjubrautar 40. Fundarstjóri - Vilhjálmur Birgisson Ræðumaður dagsins - Vilhjálmur Birgisson Stúkurnar syngja nokkur lög Kaffiveitingar (Athugið! Því miður er Bíóhöllin upptekin vegna leiksýningar og ekki hægt að bjóða börnum á sýningu eins og verið hefur)   Borgarnes Hátíðarhöldin verða í Hótel Borgarness og hefjast kl. 14.00 Hátíðin sett: Sjöfn Elísa Albertsdóttir skrifstofustjóri Stéttarfélags Vesturlands Barnakór Borgarness syngur undir stjórn Steinunnar Árnadóttur Ræða dagsins: Bryndís Hlöðversdóttir rektor Háskólans að Bifröst Tónlistaratriði nemenda Tónlistarskóla Borgarfjarðar Uppsveitin tekur lagið og Freyjukórinn syngur Internasjónalinn Kynnir - Sjöfn Elísa Albertsdóttir Félögin bjóða samkomugestum upp á kaffiveitingar að lokinni dagskrá. Einnig verður frítt í sund fyrir alla fjölskylduna í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi í tilefni dagsins og síðast en ekki síst verða tvær kvikmyndasýningar fyrir börn í Óðali kl. 13:30 og 15:30, boðið verður upp á popp og ávaxtasafa.   Búðardalur Stéttarfélag Vesturlands og Starfsmannafélag Dala og Snæfellsnessýslu standa saman að samkomu í Leifsbúð, Búðardal á baráttudegi verkalýðsins. Dagskrá hefst kl.15:00: Kynnir - Kristín G. Ólafsdóttir Ræðumaður - Eva Björk Sigurðardóttir Skemmtikraftar - Samkórinn, Vorboðinn flytur nokkur lög og Heiða Ólafsdóttir (Idol) syngur fyrir gesti. Boðið verður uppá kaffiveitingar að dagskrá lokinni   Ísafjörður Lagt verður af stað frá Baldurshúsinu, Pólgötu 2 kl. 14:00. Gengið verður að Pollgötu og þaðan niður að Edinborgarhúsi með Lúðrasveitina í fararbroddi. Dagskráin í Edinborg: Lúðrasveit tónlistaskólans - stjórnandi Madis Maekalle Ræðumaður dagsins - Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju og Starfsgreinasambandsins. Tónlistaratriði - BMW gengið spilar nokkur lög. Pistill dagsins - Herdís Hübner kennari Grunnskólans á Ísafirði. Tónlistaratriði - Nemendur Menntaskólans á Ísafirði flytja nokkur atriði úr söngleiknum Grease. Í vinnufötum og slitnum skóm - Elfar Logi Hannesson Verkalýðssagan vestfirska er saga allra Vestfirðinga í þessu leikverki verður fjallað um upphafið að baráttunni fyrir vestan. Kaffiveitingar í boði 1. maí nefndar  í Guðmundarbúð, Sindragötu 6, að hátíðarhöldum loknum. Kvikmyndasýningar fyrir börn í Ísafjarðarbíói kl. 14:00 og 16:00.   Blönduós 1. maí hátíðarhöld í Félagsheimilinu á Blönduósi þriðjudaginn 1. maí kl. 15.00. Lúðrasveit Tónlistarskóla A-Húnavatnssýslu leikur. Þverflaututríó - nemendur Tónlistarskóla A-Húnavatnssýlsu Ræðumaður - Hákon Hákonarson, fráfarandi formaður Félags málmiðnaðarmanna á Akureyri. Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps flytur nokkur lög Bíósýning fyrir börnin. Kaffiveitingar í boði Stéttarfélagsins Samstöðu.   Skagafjörður Hátíðardagskrá þann 1.maí. hefst kl. 15:00 í sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Ræðumaður verður Ágúst Ólason, skólastjóri í Varmahlíðarskóla. Að venju verða kaffiveitingar og skemmtiatriði úr ýmsum áttum.   Akureyri Kröfuganga -göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið kl. 13:30 Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar kl. 14:00 Happdrættismiðar afhentir göngufólki Hátíðardagskrá í HOFI að lokinni kröfugöngu Ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna  Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, formaður FVSA                            Aðalræða dagsins  Stefán Einar Stefánsson, formaður LÍV Skemmtidagskrá, kaffiveitingar og dregið í happdrættinu Kristján Edelstein og Pétur Hallgrímsson Atriði frá Point dansstúdíó Hundur í óskilum   Fjallabyggð Dagskrá verður í sal félaganna, Eyrargötu 24b Siglufirði frá kl. 14:30 til 17:00 Ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna - Margrét Jónsdóttir Kaffiveitingar   Húsavík Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum standa fyrir veglegri hátíðardagskrá í Íþróttahöllinni á Húsavík 1. maí 2012 kl. 14.00. Dagskrá: Ávarp - Kristbjörg Sigurðardóttir varaformaður Framsýnar Hátíðarræða - Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB Spil og söngur - ungstjarnan Ruth Ragnarsdóttir syngur Gamanmál - Einar Georg Einarsson fer með gamanmál Spil og Söngur - Friðrik Ómar Hjörleifsson spilar og syngur þekkt lög Söngur - Karlakórinn Hreimur Spil og söngur - Jógvan Hansen tekur nokkur lög, m.a. með karlakórnum Steingrímur Hallgrímsson spilar Internasjónalinn. Meðan á hátíðarhöldunum stendur verður gestum boðið upp á kaffi og meðlæti í boði stéttarfélaganna.   Þórshöfn 1.maí býður Verkalýðsfélag Þórshafnar, gestum og gangandi frítt í sali og sund í íþróttahúsinu og súpu og brauð í hádeginu. Opið frá 11 - 14. Allir velkomnir.   Austurland AFL Starfsgreinafélag sendir félagsmönnum baráttukveðjur í tilefni dagsins. 1. maí hátíðarföld félagsins fara fram á eftirfarandi stöðum:   Vopnafjörður Hátíðardagskrá  verður í Félagsheimilinu Miklagarði kl.  14:00. Kvenfélagskonur sjá um kaffiveitingar.  Tónlistaratriði til skemmtunar. Ræðumaður:  Kristján Magnússon   Borgarfjörður eystri Hátíðardagskrá verður í félagsheimilinu Fjarðarborg kl. 12.00 Kvenfélagið Eining sér  um veitingar. Ræðumaður:  Þröstur Bjarnason   Seyðisfjörður Hátíðardagskrá verður í félagsheimilinu Herðubreið kl. 15:00. 8 og 9 bekkur Seyðisfjarðarskóla sjá um kaffiveitingar og skemmtiatriði,. Ræðumaður:  Sverrir Mar Albertsson   Egilsstaðir Hátíðardagskrá verður á Hótel Héraði  kl. 10.00 Brunch og tónlistaratriði. Ræðumaður:  Sverrir Mar Albertsson   Reyðarfjörður Hátíðardagskrá verður í Safnaðarheimili Reyðarfjarðar kl. 15:00. 9. bekkur  sjá um kaffiveitingar  og Tónskóli Reyðarfjarðar sjá um tónlistaratriði. Ræðumaður:  Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir   Eskifjörður Hátíðardagskrá verður í Melbæ félagsheimili eldri borgara kl. 14:00. Félag eldri borgara sjá um kaffiveitingar.  Tónlistaratriði. Ræðumaður:  Pálína Margeirsdóttir   Neskaupstaður Hátíðardagskrá verður í Grunnskóla Norðfjarðar kl.14.00. Félag eldriborgara sjá um kaffiveitingar. Félag harmonikkuunnenda sjá um tónlist. Ræðumaður:  Grétar Ólafsson   Fáskrúðsfjörður Hátíðardagskrá verður í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar kl. 15:00 9. bekkur grunnskólans sjá  um kaffiveitingar, tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarða. Ræðumaður:  Sigurður Hólm Freysson   Stöðvarfjörður Hátíðarkaffi verður í Brekkunni  kl. 15:00 Kaffiveitiningar og  tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarða. Ræðumaður:  Sverrir Kristján Einarsson   Breiðdalsvík Hátíðardagskrá verður  á Hótel Bláfelli frá kl. 14:00 Kaffiveitingar og tónlistarartiði. Ræðumaður:  Bryndís Aradóttir   Djúpavogur Hátíðardagskrá verður á Hótel Framtíð  kl. 10:00, Brunch  og tónlistaratriði. Ræðumaður:  Gunnhildur Imsland   Hornafjörður Hátíðardagskrá verður á Hótel Höfn kl. 14:00. Kaffiveitingar,  og Lúðrasveit Hornafjarðar. LEGO hópur, Strákarnir sem fóru í Músíktilraunir frá Höfn. Ræðumaður:  Reynir Arnórsson
  1. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  2. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  3. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag
  4. 3/11/2024 3:03:03 PM Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning SGS og SA (1)