VSFK skorar á ríkisstjórnina

Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun þar sem lýst er yfir miklum vonbrigðum með þær niðurskurðarhugmyndir sem fram koma í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Stjórn Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis  lýsir miklum vonbrigðum með þær niðurskurðarhugmyndir sem fram koma í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Frumvarpið sýnir á grímulausan hátt fyrir hverja þessi ríkisstjórn starfar. Og það er ekki venjulegt launafólk í landinu. Á fyrsta starfsári sínu skerti ríkisstjórnin tekjur ríkissjóðs um tugi milljarða króna til hagsbóta fyrir þá efnamestu í samfélaginu. Nú ræðst hún með niðurskurðarhnífinn að þeim sem síst skyldi. Atvinnulausum, lífeyrisþegum, sjúklingum, þeim sem þurfa á starfsendurhæfingu að halda og þeim sem hafa minnstu menntunina. Er þá ónefndur matarskatturinn sem mun hækka matarreikning fjölskyldna um tugi þúsunda króna á ári. Stjórn Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur skorar á ríkisstjórnina að draga til baka niðurskurðarhugmyndir sem koma við þá sem lökust hafa kjörin.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag