Yfirlýsing frá samninganefnd SGS

Í tilefni af fréttum fjölmiðla þess efnis að Framsýn stéttarfélag hefur ákveðið að afturkalla samningsumboð sitt frá Starfsgreinasambandinu vegna tveggja kjarasamninga vill samninganefnd  Starfsgreinasambandsins koma eftirfarandi staðreyndum á framfæri: Framsýn stéttarfélag hefur ákveðið að afturkalla samningsumboð sitt frá Starfsgreinasambandinu og er það í samræmi við forræði einstakra félaga á sínum málum.Það er miður að í tengslum við þessa samþykkt þurfi að bera félaga sína þungum sökum. Samninganefnd Starfgreinasambandsins mun aldrei taka þátt í því að semja um að rýra kjör okkar fólks, hvort sem það lítur að vinnutíma, álagsgreiðslna eða annara þátta. Í viðræðum við Samtök atvinnulífsins hefur þessi afstaða komið fram með mjög sterkum og afdráttarlausum hætti og samninganefndarmönnum á að vera það algerlega ljóst. Það má minna á að Starfsgreinasambandið sleit viðræðum við SA vegna þessara þátta. Samninganefnd Starfsgreinasambandsins mun ekki standa í skeytasendingum við félaga sína í fjölmiðlum. Verkefni okkar er að ná samningum um bætt kjör okkar fólks, við einbeittum okkur að því í samhljómi við félaga okkar í Eflingu, Verkalýðsfélagi Akraness og  Grindavíkur. Reykjavík, 20. mars 2019 F.h. Starfsgreinasambandsins Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri flosi@sgs.is s. 897 8888
  1. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  2. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  3. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag
  4. 3/11/2024 3:03:03 PM Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning SGS og SA (1)