Fara á efnissvæði

Atkvæðagreiðsla hafin um nýjan kjarasamning við ríkið

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóð hófst á slaginu kl. 12:00 í dag og stendur til 8. júlí næstkomandi. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða tilkynntar sama dag. Hægt er að greiða atkvæði í gegnum upplýsingasíðu SGS um samninginn (undir Atkvæðagreiðsla") eða í gegnum heimasíðu viðkomandi stéttarfélags. Vakin er athygli á að félagsmenn AFLs Starfsgreinafélags greiða atkvæði í gegnum Mínar síður" á heimasíðu AFLs.

Til að greiða atkvæði um samninginn þarf viðkomandi að hafa rafræn skilríki eða íslykil. Atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn í aðildarfélögum SGS sem vinna eftir viðkomandi samningi. Geti einhver, sem telur sig eiga atkvæðisrétt, ekki kosið getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu síns stéttarfélags og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem staðfesta afdregin félagsgjöld. Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 09:00 mánudaginn 8. júlí en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn.

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér innihald samningsins vandlega og nýta sinn atkvæðisrétt.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna og innihald samningsins má nálgast hér.