Fara á efnissvæði

Auknar áhyggjur af tækni- og loftlagsbreytingum

Innflytjendur og fólk með lægri atvinnutekjur eru umtalsvert líklegri en aðrir hópar á vinnumarkaði til að hafa áhyggjur af starfsöryggi sínu vegna tækni- og loftlagsbreytinga, eins og fram kemur í nýlegri skýrslu Vörðu, Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins.

Þá hefur meirihluti launafólks, eða 63%, fundið fyrir áhrifum tækni- og loftlagsbreytinga á störf sín. Fólk með hærri atvinnutekjur er líklegra að telja að tæknibreytingar muni auðvelda því starfið sitt en tekjulægra fólk. Launafólk sem starfar í leikskólum og ræstingum er ólíklegra til að telja tæknibreytingar muni auðvelda starf þeirra.

Helmingur fær viðeigandi þjálfun eða endurmenntun þegar ný tækni er innleidd

Það fólk sem taldi breytingar af völdum loftlags- eða tæknimála hefðu haft áhrif á starf þeirra eða myndu gera það á næstu árum voru spurð hvort þau hefðu fengið viðeigandi þjálfun eða endurmenntun þegar ný tækni/breytingar voru innleiddar á vinnustaðnum. Rúmur helmingur, eða 55%, voru mjög eða frekar sammála því.