Fara á efnissvæði

Gjáin stækkar á vinnumarkaði - Ný skýrsla Vörðu

Árleg könnun sem Varða – Rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins leggur fyrir launafólk í aðildarfélögum ASÍ og BSRB, sýnir fram á breiða gjá sem einkennir stöðu launafólks í landinu.

Fram kemur í skýrslunni að sjö af hverjum tíu ná endum saman og sex af hverjum tíu gætu mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum án þess að stofna til skuldar. Þá búi hinn hluti launafólks hins vegar við allt önnur kjör og er afkoma lágtekjufólks almennt mjög erfið og umtalsverður fjöldi launafólks á hinum almenna vinnumarkaði býr við raunverulegan skort.  

Flestir í eigin húsnæði en innflytjendur standa höllum fæti

Meirihluti launafólks á eignir og býr í eigin húsnæði en frekar stór hópur er skuldsettur. Rúmlega sex af hverjum tíu búa í eigin húsnæði og rúmlega helmingur á sparnað sem nemur að minnsta kosti einum mánaðarlaunum.

Samkvæmt skýrslunni er atvinnuþátttaka innflytjenda meiri en innfæddra og hærra hlutfall þeirra er með háskólamenntun samanborið við innfædda. Þrátt fyrir það eru tekjur þeirra lægri og fjárhagstaða þeirra almennt verri.

Tekjulágt fólk býr í auknu mæli við slæma andlega líðan

Skýrslan sýnir að mikil munur er á andlegri líðan eftir heimilistekjum. Þá búa fjórir af hverjum tíu á heimilum með 499 þúsund eða lægri, við slæma andlega heilsu og hlutfallið er örlítið lægra á heimilum þar sem tekjur eru 500 til 749 þúsund.

Lesa má nánar um skýrsluna hér