Fara á efnissvæði

Varað við nýju "stéttarfélagi" í veitingageiranum

Starfsgreinasamband Íslands tekur undir með Eflingu stéttarfélagi sem varað hefur starfsfólk í veitingageiranum við meintu stéttarfélagi sem ber heitið Virðing. Virðing ber öll merki þess að vera gult stéttarfélag, stofnað af hálfu atvinnurekenda í veitingageiranum, stendur utan heildarsamtaka launafólks og hefur gert nýjan kjarasamning sem er ekki í nokkru samræmi við þá samninga sem eru í gildi í veitingageiranum.

Þvert á móti felur kjarasamningur Virðingar við SVEIT (Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði) í sér verulegar skerðingar á launum og réttindum starfsfólks og má sem dæmi nefna:

  • Dagvinna er greidd á virkum dögum til kl. 20:00 (til kl. 17:00 hjá SGS)
  • Vaktaálag á virkum kvöldum eftir kl. 20 er 31% (33% álag eftir kl. 17:00 hjá SGS)
  • Dagvinna á laugardögum til kl. 16:00 (45% álag allan daginn hjá SGS)
  • 31% álag á sunnudögum (45% álag hjá SGS)
  • Ekkert stórhátíðarkaup
  • Kjör ungmenna á aldrinum 18-21 árs eru skert
  • Heimilt að gera breytingar á starfshlutfalli með viku fyrirvara (uppsagnarfrestur gildir hjá SGS)
  • Réttur barnshafandi kvenna er skertur.
  • Lakari veikindaréttur starfsfólks og vegna barna
  • Lakari orlofsréttur
  • Lakari uppsagnarfrestur
  • Ekkert um sérstaka sjóði og greiðslur í þá
  • Ýmis félagsleg réttindi eru skert sem og réttindi og möguleikar trúnaðarmanna á að gegna starfi sínu

Hér er ekki um að ræða tæmandi lista á þeim kjaraskerðingum sem samningurinn felur í sér, en eins og sjá má á þessari upptalningu þá grefur samningur Virðingar og SVEIT á alvarlegan og ólögmætan hátt undan réttindum launafólks og þeim kjarasamningi sem það starfar eftir. Því skal haldið til haga að um störf í veitingageiranum er í gildi kjarasamningur milli Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sem kveður á um lágmarkskjör fyrir alla í viðkomandi starfsgrein. Samkvæmt lögum er óheimilt að semja um lakari kjör en kveðið er á um í þeim samningi.

SGS hvetur félagsfólk til að standa saman um sín réttindi og hafa tafarlaust samband við sitt stéttarfélag verði það beðið að vinna eftir nýjum kjarasamningi Virðingar og SVEIT.
Upplýsingar um aðildarfélög SGS er að finna hér.