Vísbendingar um gerviverktöku í ferðaþjónustu
13.02.2026
Mikið um verktöku innan ferðaþjónustunnar
Vinnustaðaeftirlit Alþýðusambands Íslands (ASÍ) ásamt stéttarfélögunum stóð að eftirlitsátaki með fólksflutningum og leiðsögn í ferðaþjónustu sumarið 2025. Átakið var skipulagt og framkvæmt í samvinnu við lögreglu, Skattinn og Vinnueftirlitið.
Eftirlitið fór fram í þremur lotum síðasta sumar við helstu ferðamannastaði á Suðurlandi: Geysi, Þingvelli, Gullfoss, í Reynifjöru og Seljalandsfoss á völdum dögum í júní, júlí og ágúst.
Helstu niðurstöður vinnustaðaeftirlits ASÍ úr átakinu þykja nokkuð sláandi.Til að mynda er verktaka útbreidd meðal leiðsögumanna og hópbifreiðastjóra og vísbendingar um gerviverktöku komu fram, þar sem vinnufyrirkomulag bar öll merki hefðbundins ráðningarsambands þrátt fyrir samninga um verktöku. Af 404 aðspurðum sögðust 68% vera í stéttarfélagi, 21% sagðist ekki vera í stéttarfélagi og 11% vissu það ekki eða vildu ekki svara. Einnig var endurgjald í mörgum tilfellum töluvert lægra en laun sem greiða skal samkvæmt kjarasamningi.
Flókin umgjörð ferðaþjónustunnar þar sem ábyrgð og eftirlit er í höndum margra aðila, kallar á samhæft og sameiginlegt eftirlit vinnustaðaeftirlits ASÍ, stéttarfélaganna, lögreglu og annarra opinberra stofnana til að raunverulegur árangur náist í baráttunni við gerviverktöku.
Skýrslu vinnustaðaeftirlits ASÍ má nálgast í heild sinni hér.