Fara á efnissvæði

Orlofsréttur

Allt launafólk á rétt á orlofi, það er leyfi frá störfum í tiltekinn fjölda daga auk orlofslauna sem reiknast af öllum launum. Reglur um orlof er að finna í orlofslögum og kjarasamningum. Orlofslögin kveða m.a. á um lágmarksorlof, ákvörðun orlofstöku og útgreiðslu orlofslauna en kjarasamningar hafa að geyma ákvæði um orlof umfram lágmarksorlof, hvernig það skiptist í sumar- og vetrarorlof, veikindi í orlofi o.fl.

Orlofsávinnsla frá 1.5. 2025 sem kemur til töku á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2026 er eftirfarandi skv. kjarasamningi SGS og SA: 

Lágmarksorlof á almennum vinnumarkaði eru 24 virkir dagar. Orlofslaun eru 10,17% af öllum launum.

Eftir 22 ára aldur og 6 mánaða starf fær starfsfólk 25 daga orlof og 10,64% orlofslaun.

Eftir 5 ár í sama fyrirtæki fær starfsfólk 28 daga orlof og 12,07% orlofslaun.  

Eftir 10 ár í sama fyrirtæki fær starfsfólk 30 daga orlof og 13,04% orlofslaun.

Bent skal á að frá og með 1. maí 2025 jókst orlofsávinnsla hjá starfsfólki sem unnið hefur í 5 ár í sama fyrirtæki í 28 virka daga og 12,07% orlofslaun.

Tekið skal fram að þann 1. maí 2024 breytist orlofsávinnsla hjá starfsfólki sem hafði náð 22 ára aldri og starfað í 6 mánuði í sama fyrirtæki, en þá átti viðkomandi starfsfólk rétt á orlofi í 25 daga og orlofslaunum sem námu 10,64%. Jafnframt jukust orlofsréttindi starfsfólks sem unnið hafði í 5 ár í sama fyrirtæki í 26 virka daga og 11,11% orlofslaun. Um er að ræða breytingu á orlofi sem kom til töku á orlofsárinu sem hófst 1. maí 2025.

 

Sjá nánar í 4. kafla í kjarasamningi SGS og Samtaka atvinnulífsins.