Uppsagnarfrestur á ótímabundnum ráðningarsamningi
Gagnkvæmur uppsagnarfrestur á reynslutíma (sem er þrír mánuðir nema annað sé ákveðið í viðkomandi ráðningarsamningi) er einn mánuður.
Gagnkvæmur uppsagnarfrestur að loknum reynslutíma er 3 mánuðir.
Sé starfsmanni sagt upp eftir a.m.k. 10 ára samfellt starf hjá sömu stofnun er uppsagnarfrestur 4 mánuðir ef starfsmaður er orðinn 55 ára, 5 mánuðir ef hann er orðinn 60 ára og 6 mánuðir ef hann er orðinn 63 ára. Starfsmaður getur hins vegar sagt upp starfi sínu með þriggja mánaða fyrirvara.
Uppsagnarfrestur tímavinnumanna og tímabundið ráðinna
Ráðning starfsmanns, sem ráðinn er tímabundið, fellur úr gildi við lok samningstíma án uppsagnar. Ef annar hvor aðila vill slíta ráðningarsambandinu fyrr gilda eftirfarandi ákvæði:
Gagnkvæmur uppsagnarfrestur í reglubundnu starfi á fyrstu 3 mánuðum starfstímans skal vera ein vika miðað við vikuskipti. Vikuskipti miðast við föstudag.
Eftir þriggja mánaða samfellt starf skal gagnkvæmur uppsagnarfrestur vera einn mánuður.
Uppsagnarfrestur óreglubundið ráðinna
Starfsmenn sem ráðnir eru óreglubundið um lengri eða skemmri tíma, hafa ekki sérstakan uppsagnarfrest á fyrsta mánuði en eina viku þaðan í frá.
Sjá nánar í 17. kafla í kjarasamningi SGS við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.