Fara á efnissvæði

Ungt fólk á vinnumarkaði

SGS og ASÍ hafa á undanförnum árum beitt sér í auknum mæli fyrir því að auka fræðslu og þekkingu á meðal ungs fólks sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaðnum. Tilgangurinn með aukinni fræðslu þessa tiltekna hóps er að vekja unga einstaklinga til umhugsunar um réttindi sín á vinnumarkaði, en því miður er raunin oft sú að unga fólkið er illa að sér um réttindi sín og skyldur.

 

Hér að neðan má nálgast fræðsluefni sem SGS og ASÍ hafa gefið út á undanförnum árum til handa ungu fólki. Athugið að sumar upplýsingarnar gætu hafa tekið breytingum og eiga því ekki við í dag.

Fyrstu skrefin á vinnumarkaðnum

Í maí 2016 stóð SGS fyrir kynningarherferð undir yfirskriftinni “Fyrstu skrefin á vinnumarkaðnum” í þeim tilgangi að vekja unga einstaklinga á vinnumarkaði til umhugsunar um réttindi sín á vinnumarkaði.

Fræðslumyndbönd um kjara- og réttindamál

ASÍ hefur gefið út stutt og hnitmiðuð myndbönd sem fjalla um ýmis kjara- og réttindamál. Myndböndin eru m.a. notuð í fræðslu ASÍ og stéttarfélaganna í grunn- og framhaldsskólum landsins þar sem þau hafa fengið afar góð viðbrögð.