Formannafundir aðildarfélaga SGS eru æðsta vald sambandsins milli reglulegra þinga og eru vettvangur stefnumótunar og samráðs aðildarfélaga. Formannafundur er kallaður saman að lágmarki 4 sinnum á ári. Um er að ræða útvíkkaðan fund, þ.e.a.s. til fundarins eru boðaðir formenn aðildarfélaga SGS auk eins fulltrúa til viðbótar frá hverju félagi.