Fara á efnissvæði

Virðismat starfa hjá ríkinu

Vinna við virðismat starfa hjá ríkinu hefur staðið yfir um nokkurt skeið en það er samstarf stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Markmiðið er að skapa heildstæðan og málefnalegan grundvöll til að meta virði ólíkra starfa út frá þeim kröfum sem þau gera, meðal annars hvað varðar þekkingu og færni, ábyrgð, álag og vinnuaðstæður. Virðismatinu er jafnframt ætlað að stuðla að auknu launajafnrétti og draga úr kerfisbundnu vanmati starfa.

Vinnan stendur enn yfir og verða upplýsingar birtar hér eftir því sem henni miðar áfram.

Hægt er að kynna sér virðismatið nánar á heimasíðu Jafnlaunastofu

Fræðslumyndbönd og glærukynningar um verkefnið má nálgast hér.