Fimmtudaginn 10. september heldur Starfsgreinasambandið þriðja formannafundinn á þessu ári. Til fundarins eru boðaðir formenn allra 18 aðildarfélaga SGS. Formannafundir aðildarfélaga SGS eru æðsta vald sambandsins milli reglulegra þinga og eru vettvangur stefnumótunar og samráðs aðildarfélaga.