Fara á efnissvæði

Ályktanir 47. þings ASÍ

Á 47. þingi Alþýðusambands Íslands, sem lauk fyrir helgi, voru samþykktar fjórar ályktanir sem marka áherslur sambandsins næstu tvö ár. Þing ASÍ er haldið annað hvert ár en þess á milli er dagleg stjórnun sambandsins í höndum forseta og miðstjórnar. Á þinginu var jafnframt kjörin ný forysta ASÍ, en ásamt Georgi Páli voru einnig kjörnir þrír varaforsetar. Sjá mynd af nýrri forystu ASÍ neðst í fréttinni.

Ályktanirnar taka á ýmsum brýnum málefnum launafólks, meðal annars efnahagslegu og félagslegu réttlæti, réttindum á breyttum vinnumarkaði, færni og menntun og alþjóðamálum.

Efnahagslegt og félagslegt réttlæti

Þingið hafnar þeirri forgangsröðun að mæta efnahagslegum áskorunum með auknum byrðum á launafólk, veikari réttindum og skertri almannaþjónustu. Slík stefna geti aldrei orðið grundvöllur sáttar á vinnumarkaði.

Áhersla er lögð á að efnahagslegur stöðugleiki, lægri vextir og bætt lífskjör náist aðeins ef stjórnvöld, sveitarfélög og atvinnurekendur axla ábyrgð. Þá eru ríki og sveitarfélög hvött til að tryggja mun örari uppbyggingu öruggs, viðráðanlegs og óhagnaðardrifins húsnæðis um allt land.

Góð störf, réttindi og öryggi launafólks

Þingið krefst þess að þær breytingar sem ganga yfir vinnumarkaðinn verði nýttar í þágu almennings. Tækniþróun og græn umskipti mega ekki leiða til aukins ójafnaðar eða veikari kjara og réttinda launafólks.

Ný störf þurfa að byggjast á kjarasamningum og fullum réttindum. Jafnframt verði spornað gegn félagslegum undirboðum, gerviverktöku, ótryggum ráðningum og aukinni útvistun starfa.

Launafólk njóti ávinnings tæknibreytinga

Gervigreind, sjálfvirknivæðing og önnur tækniþróun munu hafa mikil áhrif á störf og vinnumarkað. Þingið leggur áherslu á að launafólk hafi raunverulega aðkomu að innleiðingu nýrrar tækni og að ávinningur aukinnar framleiðni skili sér í bættum kjörum, styttri vinnutíma, betri vinnuaðstæðum og auknum lífsgæðum.

Launafólki verði jafnframt tryggður réttur og raunhæfur möguleiki til sí- og endurmenntunar án þess að stofna afkomu sinni í hættu. Tryggja þurfi að enginn verði skilinn eftir þegar störf og atvinnuhættir breytast.

Stefna og grunngildi ASÍ í alþjóðamálum

Þá samþykkti þingið alþjóðastefnu ASÍ, en þar er varað við þróun þar sem virðing fyrir alþjóðareglum fer minnkandi og áhrif voldugra fjölþjóðlegra fyrirtækja aukast.

Þingið bendir á að gríðarleg auðsöfnun fámenns hóps grafi undan grundvallarréttindum vinnandi fólks og veiki stoðir lýðræðis og velferðar. Alþjóðastarf ASÍ byggist á mannréttindum, félagslegu réttlæti, samstöðu launafólks og baráttu gegn mismunun, launaþjófnaði og félagslegum undirboðum.

Ályktanirnar í heild sinni má lesa á þingvef ASÍ.

 

Ný forysta ASÍ

Forsetateymi ASÍ

Frá vinstri: Georg Páll Skúlason, forseti ASÍ. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, er fyrsti varaforseti, Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, er annar varaforseti og Berglind Kristófersdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, er þriðji varaforseti.