47. þing ASÍ sett í dag
14.10.2026
Þétt var setinn bekkurinn þegar 47. þing Alþýðusambands Íslands (ASÍ) var sett í morgun á Hilton Reykjavík Nordica. Að þessu sinni ber þingið yfirskriftina Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu.
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, flutti setningarávarp og setti þingið. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ávarpaði einnig þingið.
Stærsti hluti fyrsta þingdagsins var opinn gestum og boðið var upp á fjölda fyrirlestra, erinda og pallborðsumræðna sem tengdust þeim málefnum sem verða til umfjöllunar á þinginu næstu daga.
Meginmálefni þingsins eru fjögur:
-
Efnahagslegt og félagslegt réttlæti
-
Góð störf, réttindi og öryggi launafólks á breyttum vinnumarkaði
-
Færni, þekking og menntun á breyttum vinnumarkaði
-
Alþjóðamál og grunngildi verkalýðshreyfingarinnar
Þingið sækja 72 fulltrúar frá aðildarfélögum Starfsgreinasambands Íslands og er þeim óskað góðs gengis í þeirri mikilvægu vinnu sem fram undan er.
Nánari upplýsingar má finna á þingvef ASÍ.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ávarpaði þingið.
Hann var þétt setinn bekkurinn í morgun við setningu 47. þings ASÍ á Hilton Reykjavík Nordica.