Ályktun miðstjórnar ASÍ vegna Wolt
17.09.2026
Miðstjórn ASÍ lýsir í ályktun yfir eindregnum stuðningi við kjarabaráttu og aðgerðir sendla Wolt. Miðstjórn hvetur sendla fyrirtækisins til að leita til ASÍ og aðildarfélaga þess til að tryggja stöðu sína og kjör samkvæmt lögum og kjarasamningum.
ASÍ skorar jafnframt á fyrirtæki hérlendis sem starfrækja stafræna vinnuvettvanga að skrá starfsfólk réttilega sem launafólk, gerast aðilar að og fylgja gildandi kjarasamningum um þeirra og réttindi.
Í ályktuninni er bent á að íslensk verkalýðshreyfing muni ekki samþykkja félagsleg undirboð sem grafa undan kjörum og réttindum launafólks og leikreglum skipulagðs vinnumarkaðar.
Uppgangur hark-hagkerfisins er alþjóðlegt vandamál, en þar er víða sótt að kjörum og réttindum launafólks. Miðstjórn tekur einnig undir sameiginlega yfirlýsingu norrænna stéttarfélaga um að störf á stafrænum vinnuvettvöngum verði að tryggja fólki mannsæmandi afkomu, örugg starfsskilyrði og félagslega vernd.
ASÍ hefur ítrekað fjallað um gerviverktöku og þá þróun sem hafi fylgt uppgangi hark-hagkerfisins, m.a. í tengslum við starfsemi Wolt hér á landi. Stafræn stjórnun og ný rekstrarform megi ekki verða leið til að færa ábyrgð og áhættu atvinnurekstrar yfir á einstaklinga.
Nánar um ályktun ASÍ má lesa hér.