Bensínverð fylgir ekki heimsmarkaði
20.11.2026
Heimsmarkaðsverð á bensíni hefur lækkað töluvert frá því um miðjan september en sú lækkun hefur enn sem komið er aðeins skilað sér að litlu leyti til íslenskra neytenda. Þetta kemur fram í nýrri greiningu verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands(ASÍ).
Frá ársbyrjun hefur meðaltal lægsta bensínverðs hjá íslenskum smásölum hækkað um tæp 35%. Bensínverð án opinberra gjalda hefur hækkað um 40% á sama tíma en heimsmarkaðsverð um 20% í íslenskum krónum.
Heimsmarkaðsverð hækkaði ört framan af árinu og hafði nær tvöfaldast þegar það náði hámarki í maí. Verðið lækkaði síðan yfir sumarið, hækkaði aftur fram í miðjan september en hefur fallið verulega síðan. Innlent bensínverð án opinberra gjalda hélt hins vegar áfram að hækka fram í byrjun nóvember og hefur aðeins lækkað lítillega síðan.
Samanburður við önnur Evrópulönd sýnir sömu þróun. Frá lokum september til 9. nóvember lækkaði bensínverð án opinberra gjalda samkvæmt viðmiði Evrópusambandsins um 11% en hækkaði um tæp 3% á Íslandi. Verð hér á landi var því enn nærri hæsta gildi ársins þótt lækkanir væru komnar fram í öllum samanburðarlöndunum.
ASÍ hefur áður bent á vísbendingar um að innlent eldsneytisverð bregðist hraðar og meira við hækkunum heimsmarkaðsverðs en lækkunum. Nýja yfirferðin nægir þó ekki ein og sér til að staðfesta að sú sé raunin nú. Innlent verð hækkaði minna en heimsmarkaðsverð í vor og hluti hausthækkunarinnar gæti því verið síðbúin aðlögun að fyrri hækkunum erlendis.
Þróunin gefur engu að síður tilefni til áframhaldandi eftirlits með því hvernig breytingar á heimsmarkaðsverði skila sér til íslenskra neytenda, að því er fram kemur í greiningunni.