Brot við hópuppsagnir leiddu til skaðabóta
30.10.2026
Landsréttur dæmdi nýlega atvinnurekanda skaðabótaskyldan fyrir að hafa ekki haft lögbundið samráð við fulltrúa starfsfólks eða tilkynnt Vinnumálastofnun um fyrirhugaðar uppsagnir áður en gripið var til þeirra. Dómurinn þykir marka mikilvæg tímamót í réttarvernd launafólks en með honum var staðfest að brot gegn samráðsskyldu samkvæmt lögum um hópuppsagnir geti leitt til skaðabótaábyrgðar atvinnurekanda.
Frá þessu er greint á vef ASÍ.
Málavextir voru þeir að deilt var um hvort uppsagnirnar féllu undir lög um hópuppsagnir og hvort skortur á lögbundnu samráði gæti leitt til skaðabótaábyrgðar. Starfsmanninum sem höfðaði málið hafði verið sagt upp ásamt 13 öðrum vegna skipulagsbreytinga. Óumdeilt var að ekkert lögbundið samráð hafði farið fram við fulltrúa starfsfólks og að uppsagnirnar höfðu ekki verið tilkynntar Vinnumálastofnun, eins og lögin mæla fyrir um.
Undir rekstri málsins var aflað ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins sem laut meðal annars að því hverjir teljist starfsmenn þegar metið er hvort uppsagnir falli undir lög um hópuppsagnir og hvaða viðurlög gildi við brotum gegn lögunum.
Með hliðsjón af áliti EFTA-dómstólsins komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að um hópuppsagnir hefði verið að ræða í málinu og því hefði atvinnurekandanum borið að fylgja málsmeðferðarreglum laganna. Þar á meðal er skýr skylda atvinnurekanda til að hafa samráð við fulltrúa starfsfólks áður en gripið er til hópuppsagna og tilkynna Vinnumálastofnun um yfirvofandi hópuppsagnir innan lögmæltra tímamarka.
Landsréttur tók sérstaklega fram að óvissa um hvort samráð hefði getað haft áhrif á ákvörðunina um uppsagnirnar stæði ekki í vegi fyrir skaðabótaábyrgð. Taldi dómstóllinn því að skilyrði skaðabótaábyrgðar væru uppfyllt og dæmdi íslenska ríkið til greiðslu skaðabóta.
Niðurstaða Landsréttar þykir hafa verulega þýðingu fyrir réttarvernd launafólks þegar atvinnurekendur grípa til hópuppsagna og undirstrikar mikilvægi þess að þeir virði lögbundna samráðs- og tilkynningarskyldu. Samráðinu er ætlað að tryggja að fulltrúar starfsfólks fái raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif á fyrirhugaðar uppsagnir áður en endanleg ákvörðun er tekin. Fari atvinnurekendur ekki að þeirri skyldu er grafið undan þeim réttindum sem lögunum er ætlað að verja.
Landsréttur tók einnig fram að skaðabótaábyrgð vegna brota á samráðsskyldu væri ekki háð því að sýnt væri fram á að samráð hefði breytt ákvörðun atvinnurekanda. Slík krafa myndi veikja verulega þá vernd sem lögbundnu samráði er ætlað að tryggja.