Desemberuppbót launafólks 2026
17.11.2026
Þar sem styttist í jólamánuðinn vill Starfsgreinasambandið vekja athygli félagsmanna á því að samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki desemberuppbót ár hvert.
Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða meðal annars starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót skal greiða í einu lagi og ekki reiknast orlof til viðbótar við hana. Um er að ræða fasta krónutölu sem tekur ekki hækkunum samkvæmt öðrum ákvæðum kjarasamninga. Áunna uppbót skal gera upp samhliða starfslokum.
Almennur vinnumarkaður
Desemberuppbót er 114.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist eigi síðar en 15. desember. Þeir sem eru í starfi fyrstu vikuna í desember eða hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eiga rétt á uppbót. Fullt ársstarf miðast við 45 vikur eða 1.800 klst. á tímabilinu 1. janúar til 31. desember. Nálgast má reiknivél hér.
Ríki
Desemberuppbót, eða persónuuppbót, er 114.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. desember. Þeir sem eru við störf fyrstu viku nóvember eða hafa starfað samfellt í 13 vikur á árinu skulu fá greidda desemberuppbót. Full uppbót miðast við fullt starf á tímabilinu 1. janúar til 31. október. Nálgast má reiknivél hér.
Sveitarfélög
Desemberuppbót, eða persónuuppbót, er 145.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. desember. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag. Nálgast má reiknivél hér.
Nánari upplýsingar um desemberuppbót er að finna í kjarasamningum SGS fyrir almennan vinnumarkað, ríki og sveitarfélög.