Fara á efnissvæði

Fjölbreytt dagskrá víða á baráttudegi verkalýðsins

Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins, 1. maí, verður haldinn hátíðlegur á morgun. Aðildarfélög SGS ásamt öðrum stéttarfélögum standa fyrir baráttufundum, hátíðarhöldum og kröfugöngum víðs vegar um landið í tilefni dagsins. Dagskráin er að vanda fjölbreytt og hér að neðan má finna upplýsingar um viðburði á hverjum stað. Nánari upplýsingar um dagskrá er einnig finna á heimasíðum aðildarfélaga SGS.

Félagsmenn og aðrir eru eindregið hvattir til að taka þátt og fjölmenna á viðburðina.

Suðvesturhornið

Reykjavík

Safnast verður saman á Skólavörðuholti kl. 13:00. Gangan hefst kl. 13:30 sem svo fer niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila á Skólavörðuholti og síðan er gengið niður á Ingólfstorg. Útifundur hefst svo kl. 14:00 á Ingólfstorgi. Fundarstjóri er Felix Bergsson, fjölmiðlamaður og leikari. Halla Gunnarsdóttir formaður VR ávarpar fundinn og Inspector Spacetime tekur lagið og í lok fundarins verður samsöngur.

Hafnarfjörður

Samstöðutónleikar Verkalýðsfélagsins Hlífar og Starfsmannafélags Hafnarfjarðar í Bæjarbíói kl. 14:00. Fram koma Una Torfa, Valdimar og HúbbaBúbba. Frítt inn á meðan húsrúm leyfir og veitingar í boði. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega þar sem viðbúið er að húsið fyllist á stuttum tíma.

Reykjanesbær

Hátíðardagskrá verður í Stapa og opnar húsið kl. 13:45. Blásturssveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar tekur á móti gestum og Guðmundur Hermannsson leikur létta tóna fyrir dagskrá og á milli atriða. Kynnir er Guðbjörg Krismundsdóttir formaður VSFK. Kristján Gunnarsson formaður Félags eldri borgara á Suðurnesjum mun halda hátíðarræðu, Kósýbandið tekur nokkur lög og Leikfélag Keflavíkur verður með atriði úr söngleiknum We will rock you. Kór Ytri Njarðvíkurkirkju lokar dagskrá með söng.

Vesturland

Akranes

Verkalýðsfélag Akraness, Sameyki, VR, FIT, Kennarasamband Íslands og Sjúkraliðafélag Íslands standa fyrir dagskrá á hátíðar- og baráttudegi verkafólks 1. maí. Safnast verður saman við skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness að Þjóðbraut 1 kl. 14 og genginn hringur að bæjarskrifstofum Akraness þar sem hátíðardagskrá hefst í sal eldri borgara.

Elín Theódóra Reynisdóttir flytur hátíðarræðu, fjöldasöngur og Kvennakórinn Ymur syngur nokkur lög. Boðið verður upp á kaffi og köku. Þá verður börnum boðið í Bíóhöllina á Super Mario sem hefst kl. 15:30.

Borgarnes

Dagskrá hefst kl 14:00 í Hjálmakletti.

Kl. 12:00 verður bíó fyrir yngstu kynslóðina í Óðali – popp og svali í boði. Kl. 14:00 hefst svo baráttufundur í Hjálmakletti. Félögin bjóða samkomugestum upp á kaffihlaðborð að fundi loknum, foreldrar og nemendur 9. bekkjar í GB sjá um veitingarnar. Kynnir verður Ólöf María Brynjarsdóttir, verkefnastjóri hjá Stéttarfélagi Vesturlands.

Formaður Stéttarfélags Vesturlands, Silja Eyrún Steingrímsdóttir, flytur ávarp. Leikfélagið Kopar frá Menntaskóla Borgarfjarðar sýnir atriði úr Gosa. Hátíðarræðu dagsins flytur Heiðar Lind Hansson sagnfræðingur. Þá mæta Gleðigjafarnir kór eldri borgara og stjórnandi er Hólmfríður Friðjónsdóttir. Lalli töframaður mætir með töfrabrögð fyrir börn á öllum aldri.

Stykkishólmur

Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki standa fyrir dagskrá á Fosshótel Stykkishólmi. Dagskráin hefst kl. 13:30. Kynnir er Þóra Sonja Helgadóttir (Kjölur) og ræðumaður er Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu-rannsóknarstofu vinnumarkaðarins. Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Stykkishólms og Jóni Jónssyni. Kaffiveitingar í boði.

Grundarfjörður

Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki standa fyrir dagskrá í Samkomuhúsinu. Dagskráin hefst kl. 14:30. Kynnir er Sævör Þorvarðardóttir (Sameyki) og ræðumaður er Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu-rannsóknarstofu vinnumarkaðarins. Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Grundarfjarðar og Jóni Jónssyni. Kaffiveitingar í boði.

Snæfellsbær

Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki standa fyrir dagskrá í Klifi. Dagskráin hefst kl. 15:30. Kynnir er Vignir Smári Maríasson formaður Verkalýðsfélags Snæfellinga og ræðumaður er Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu-rannsóknarstofu vinnumarkaðarins. Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Snæfellsbæjar og Jóni Jónssyni. Kaffiveitingar í boði.

Búðardalur

Dagskrá hefst kl. 13:00 í Dalabúð. Kaffiveitingar á vegum stéttarfélaganna. Kynnir verður Anna Maria Sloboda, kjarafulltrúi Stéttarfélags Vesturlands. Skemmtiatriði frá Lalla töframanni. Ávarp dagsins flytur Arna Jakobína Björnsdóttir, annar varaformaður BSRB. Sönghópurinn Hljómbrot flytur ómþýða tóna.

Vestfirðir

Ísafjörður

Kröfuganga frá Alþýðuhúsi kl. 14:00 með lögreglu og lúðrasveit í fararbroddi.

Í Edinborg spilar lúðrasveit nokkur lög. Tónlistaratriði. Sigurbjörg Danía Árnadóttir flytur Maístjörnuna og undirleikur Judith Pamela Tobin. Þá verður Vistarbandið einnig með tónlistaratriði og einleikur frá Elfari Loga Hannessyni. Steinn Daníel Þrastarson formaður Félags Járniðnaðarmanna flytur pistil dagsins og Guðrún Sigríður Matthíasdóttir er kynnir. Kaffiveitingar verða í Guðmundarbúð.

Suðureyri

Kröfuganga frá Brekkukoti kl. 14:00. Boðsund barna í Sundlaug Suðureyrar. Hátíðardagskrá í Félagsheimili Súgfirðinga. Kaffiveitingar, 1. maí ávarp, ræða dagsins og söngur leikskólabarna.

Norðurland

Stéttarfélögin við Eyjafjörð sem standa að dagskránni eru: Kennarasamband Íslands, Eining-Iðja, Kjölur – stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri og nágrenni, Rafiðnaðarsamband Íslands og RFN, Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri, Sameyki, Byggiðn og VM, félag vélstjóra og málmtæknimanna, álmtæknimanna, Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og Kennarasamband Íslands

Akureyri – kröfuganga og hátíðardagskrá 

Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið kl. 13:45. Lagt verður af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar kl. 14:00. Að lokinni kröfugöngu hefst hátíðardagskrá á Ráðhústorgi þar sem verður m.a. boðið upp á skemmtiatriði, grillaðar pylsur og skátatívolí. 

Fjallabyggð 

Frá kl. 14:30 til 17:00 verður dagskrá í sal félaganna að Eyrargötu 24b á Siglufirði, léttar veitingar og ávarp 1. nefndar stéttarfélaganna.

Húsavík

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum: Framsýn stéttarfélag, Starfsmannafélag Húsavíkur, Þingiðn og Félag iðnaðarmanna - standa fyrir hátíðarhöldum 1. maí á Fosshótel Húsavík.
Hátíðin hefst kl. 14:00.

Boðið verður upp á veglegt kaffihlaðborð frá hótelinu, hátíðarræðu, auk þess sem
heimamenn í bland við góða gesti munu sjá um að skemmta gestum með frábærum
tónlistaratriðum.

Dagskrá:
• Tónlistaratriði: Elísabet Anna Helgadóttir og Eik Árnadóttir syngja Maístjörnuna
og nokkur lög við undirleik Kristjáns E. Helgasonar
• Ávarp: Ósk Helgadóttir varaformaður Framsýnar stéttarfélags
• Tónlistaratriði: Söngatriði úr leikritinu Rocky Horror í flutningi LH
• Hátíðarræða: Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar stéttarfélags
• Tónlistaratriði: Eyjólfur “Eyfi” Kristjánsson flytur nokkur af sínum bestu lögum
• Tónlistaratriði: Tónasmiðjan flytur dægurlög undir stjórn Elvars Bragasonar

Meðan á hátíðarhöldunum stendur verður gestum boðið upp á kaffihlaðborð.

Þingeyingar og landsmenn allir eru hvattir til að taka þátt í hátíðarhöldunum
og draga fána að húni á hátíðar- og baráttudegi verkafólks 1. maí 2026.

Blönduós

Kaffiveitingar verða að venju í Félagsheimilinu á Blönduósi og hefst dagskráin kl. 14:00.

Austurland

Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fer fram á milli kl. 12:00 og 13:00.
Hátíðarhöldin verða á eftirtöldum stöðum:

  • Vopnafirði, – Félagsheimilinu Miklagarði – Arney Rósa Svansdóttir flytur ávarp
  • Borgarfirði eystri – Álfheimum – Kristján Eggert Guðjónsson flytur ávarp
  • Seyðisfirði – Félagsheimilinu Herðubreið – Jóhann Vest flytur ávarp
  • Egilsstöðum – Hótel Héraði – Daria Andronachi flytur ávarp
  • Reyðarfirði – Heiðarbær – Jón Kristinn Arngrímsson flytur ávarp
  • Eskifirði – Melbær- Sverrir Mar Albertsson flytur ávarp
  • Neskaupstað – Hótel Hildibrand- Elfur Gígja Hreggviðsdóttir flytur ávarp
  • Fáskrúðsfirði – Glaðheimum – Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir flytur ávarp
  • Stöðvarfirði – í safnaðarsal Stöðvarfjarðarkirkju – Eva María Sigurðardóttir flytur ávarp
  • Breiðdalsvík–Hamar kaffihús –Dóra Oddný Sigþórsdóttir flytur ávarp
  • Djúpavogi – Hótel Framtíð – Guðrún Aradóttir flytur ávarp
  • Hornafirði – Heppa restaurant-  Jörgína Elínborg Jónsdóttir flytur ávarp

Suðurland

Selfoss

Lúðrasveit Selfoss og Hestamannafélagið Steipnir leiða kröfugöngu sem hefst klukkan 11:00 frá Austurvegi 56 að Hótel Selfossi þar sem dagskrá og skemmtun fer fram.

  • Kynnir er Jónas Yngvi Ásgrímsson frá VR.
  • Ræðumaður verður Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB.
  • Annar ræðumaður verður Elena R Marquez Gunnlaugsdóttir, nemandi í ML.
  • Tónlistaratriði frá Tónsmiðjunni: Rannveig Helga Kjartansdóttir og Örn Hreinsson.
  • Leikhópurinn Lotta kemur fram.
  • Fimleikadeild UMFS sér um andlitsmálun.
  • Kaffi, kökur og veitingar.

Vestmannaeyjar

1. maí verður haldinn hátíðlegur í AKÓGES. Húsið verður opnað kl. 14:00 og tekið verður á móti börnum á öllum aldri með andlitsmálningu og blöðrum. Tónlistarskóli Vestmannaeyja verður með tónlistar- og söngatriði. Björg Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, flytur hátíðarræðu. Þá verða kaffi, vöfflur og fleira einnig á boðstólum. Allir hjartanlega velkomnir og aðgangur ókeypis.