Forsendur kjarasamninga brostnar
24.08.2026
Verðbólga mældist 5,6% í ágúst og hefur hún ekki mælst hærri í tvö ár. Verðbólgan er því komin yfir 4,7% viðmið kjarasamninganna og þar með er ljóst að verðlagsforsendur þeirra eru brostnar.
Formenn aðildarfélaga SGS komu saman til upplýsinga- og samráðsfundar í morgun til að ræða meðal annars forsenduákvæði kjarasamninga og stöðuna sem nú blasir við launafólki.
Ljóst er að kjaramálin verða í brennidepli á næsta formannafundi SGS, sem boðaður hefur verið 10. september nk., þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref metin.