Fara á efnissvæði

Vel heppnaðir fræðsludagar á Hótel Selfossi

Dagana 6. og 7. maí stóð Starfsgreinasambandið fyrir fræðsludögum fyrir starfsfólk aðildarfélaga sambandsins. Starfsfólkið kom saman á Hótel Selfossi og mætingin var með allra besta móti, en alls mættu 41 fróðleiksfúsir fulltrúar frá 15 félögum.

Dagskrá fræðsludaga var með fjölbreyttu sniði og samræmi við ábendingar starfsfólksins. Fyrri daginn var námskeið Margrétar Reynisdóttur hjá gerumbetur.is um erfið samskipti. Eftir námskeiðið bauð Halldóra Sveinsdóttir formaður Bárunar starfsfólkinu í heimsókn. Seinni daginn fóru Björg Bjarnadóttir og Arinbjörn Rögnvaldsson yfir starfsemi og hvað væri fram undan hjá SGS, svo mættu þær Solveig Ólöf Magnúsdóttir og Lilja Baldursdóttir frá Landsmennt og áttu fróðlegar og góðar samræður við starfsfólkið um starfsemi fræðslusjóða.

Fræðludagarnir þóttu vel heppnaðir og góður rómur var gerður hjá öllum sem tóku þátt enda frábær hópur.