Fara á efnissvæði

Georg Páll kjörinn forseti ASÍ

Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu, var í dag kjörinn forseti Alþýðusambands Íslands. Tveir voru í framboði til embættisins, Georg Páll og Arnaldur Grétarsson.

Georg Páll hlaut 163 atkvæði en Arnaldur hlaut 127 atkvæði.

Georg Páll tekur við embættinu af Finnbirni A. Hermannssyni, sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Finnbjörn tók við embætti forseta ASÍ í apríl 2023 og gegndi því í um þrjú og hálft ár.

Þingforseti að þessu sinni kom úr röðum SGS, en Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður VerkVest, gegndi því embætti.

Halla Gunnarsdóttir (VR) var kjörin fyrsti varaforseti, Guðbjörg Kristmundsdóttir (VSFK) annar varaforseti og Berglind Kristófersdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, þriðji varaforseti.

SGS á þrjá aðalmenn og fjóra varamenn í miðstjórn ASÍ. Aðalmenn voru kjörnir Aðalsteinn Árni Baldursson (Framsýn), Guðbjörg Kristmundsdóttir (VSFK) og Tryggvi Jóhannsson (Eining-Iðja). Varamenn eru þau Birkir Snær Guðjónsson (AFL), Eyþór Þ. Árnason (Hlíf), Guðrún Elín Pálsdóttir (VLFS) og Silja Eyrún Steingrímsdóttir (StéttVest).

Starfsgreinasamband Íslands óskar nýkjörinni forystu ASÍ til hamingju með kjörið og þakkar Finnbirni kærlega fyrir störf hans í þágu verkalýðshreyfingarinnar og íslensks launafólks.

Á þinginu voru fjölmargar ályktanir og tillögur teknar til umfjöllunar. Samþykktar ályktanir og frekari upplýsingar um þingið eru aðgengilegar á þingvef ASÍ.