Fara á efnissvæði

Innlendar matvörur hækka mest í verði

Dagvöruverð hækkaði um 0,33% frá ágúst til nóvember þrátt fyrir að fyrirtæki á smásölumarkaði hefðu í september boðað verðfrystingar eða verðlækkanir. Hækkunina má fyrst og fremst rekja til kjöts og mjólkurvara en verðlækkanir hafa einkum orðið á innfluttum vörum.

Frá þessu segir í nýrri úttekt verðlagseftirlits ASÍ. Þar kemur fram að dregið hafi úr verðhækkunum frá upphafi árs, þegar dagvöruverð hækkaði að meðaltali um 0,66% á mánuði á fyrsta ársfjórðungi.

Á tímabilinu ágúst til nóvember hækkaði dagvöruverð mest í Bónus, um 0,49%, og um 0,4% í Krónunni. Verðlag stóð hins vegar nær óbreytt í Prís og Nettó, en hækkunin nam 0,06% í Prís og 0,02% í Nettó.

Kjötverð, einkum verð á nautakjöti, vegur þungt í hækkuninni og skýrir meira en helming hennar. Mjólkurvörur, fiskur og grænmeti hækkuðu einnig í verði.

Á sama tíma mældist aukin tíðni verðlækkana. Bónus lækkaði verð á 31,4% vara, sem var hæsta hlutfallið meðal verslananna, en þar hækkaði jafnframt verð á 22,6% vara. Í Krónunni lækkaði verð á 16,1% vara, í Nettó á 13,8% og í Prís á 10,9% vara.

Niðurstöðurnar sýna því ólíka verðþróun eftir vöruflokkum. Verðlækkanir hafa að mestu verið bundnar við innfluttar vörur en hækkanir á innlendum matvælum, sérstaklega kjöti og mjólkurvörum, hafa vegið þyngra í heildarþróun dagvöruverðs.